Andskotans og helvíti

Já, ojbara. Ég fer að ná sögulegu hámarki í þyngd. Jæja ok, ekki alveg, en allavegana miðað við undanfarin 3 ár eða svo. Þetta er bara ekki hægt. Er hætt að passa í öll fötin mín og bara blæs út og ojbara og oj. Nú verð ég að koma mér af stað aftur, bæði í mataræðinu og í ræktinni. Það þýðir ekkert endalaust að fela sig á bak við erfiða tíma, þó vissulega hafi mikið gengið á undanfarið. Nú er bara alveg tími til að koma sér í flott form. Og ég get gleymt brúðkaupsgulrótinni, því það verður ekkert brúðkaup :S Nú verð ég bara að finna einhverja aðra gulrót. Elsta stelpan er t.d. að fara að fermast um páskana og það væri nú ágætt að vera búin að ná nokkrum kílóum af sér þá.  Eigum við að stefna á 10 kg fyrir þann tíma? Jájá, segjum það ;)

3 svör to “Andskotans og helvíti”

  1. 75kg segir:

    Mikið er ég glöð að sjá þig aftur, leiðinlegt að heyra með brúðkaupið :( En við getum þetta, ég er alveg viss um það. Er voða lítið að skrifa á síðuna mína eins og er, meira bara inn á atak.bloggar.is, en set örugglega eitthvað þar inn svona bráðum, vantaði bara einhverja tilbreytingu! :)

  2. Lilja segir:

    elsku lilja mín… við skulum koma okkur af stað… við skulum, getum, ætlum, viljum og allt það!!!

  3. 15kg segir:

    Hvernig gengur?
    Ég er að reyna að komast í gírinn aftur, við getum þetta alveg!!

Skildu eftir svar