Ætli ég sé ekki búin að skemma eitthvað af árangrinum núna. Í gær var ég með gesti og ég bæði bakaði kanelsnúða og síðan heimalagaða pizzu seinna um kvöldið. Átum öll vel og mikið, líka af hnetum og smá nammi. Það voru líka drukknir nokkrir bjórar. Vigtin var svo sem ok í morgun, en ég hef engan vegin staðið mig í dag og verið að narta í pizzuleifarnar, kanelsnúðana og einhverja hrikalega góða “brownies” köku sem mágkona mín kom með í gær og skildi eftir. Þannig að ég er ekkert voðalega spennt fyrir vigtinni á morgun. En ég mun þó halda áfram. Vona bara að skaðinn sé ekki of mikill. Ætla að hætta í sukkinu akkurat núna á mínútunni.
12 október, 2008 klukkan 8:54 pm |
Nei, þú bara stendur upp aftur og heldur þínu striki! Þú ert á góðri leið.
Ég þarf hins vegar að fara að taka í rassgatið á sjálfri mér og hunskast í ræktina!
Gangi þér vel
15 október, 2008 klukkan 6:27 pm |
Þetta er það sem þurfum að berjast við og þurfum örugglega alltaf að berjast við, þannig að nú er ekkert annað að gera en að standa upp og rífa sig upp á rassgatinu, hehe, eða þannig. Allavega bara halda áfram, það er ekkert annað sem við getum gert, nú ertu búin að vera standa þig og vel og nú heldurðu því bara áfram!
Vá þetta eru geðveikt frekjuleg ummæli, ég leyfi mér að skrifa eitthvað svona hjá þér, því ég veit þú þolir það, hehe! :Þ
21 október, 2008 klukkan 11:01 pm |
Ofsalega skil ég þig vil, þetta sukk er frekar erfitt að losna við, er að berjast við það núna.
24 október, 2008 klukkan 2:25 pm |
Koma svo!
9 nóvember, 2008 klukkan 3:07 am |
Hæ pæ, hvar ertu eiginlega, sakna þín alveg óendanlega mikið!!!!!!!!!!!!!! Þú verður að koma og sparka í rassinn á mér!!!!!!!!!!!!!!!!!
29 nóvember, 2008 klukkan 6:15 pm |
hæhæ viltu addamér á msn og spjalla aðeins?