Er sko búin að vera ógeðslega dugleg í mataræðinu, held mig samviskusamlega við ca 1200-1500 hitaeiningar á dag, hef einstaka sinnum farið undir og einstaka sinnum yfir. En vigtin virðist bara alveg standa í stað. Var voða ánægð á laugardaginn, þá virtist hún hafa tekið smá kipp. Svo reyndar stalst ég til að fá mér smá pizzu í gær og í morgun var vigtin bara aftur á sama stað og hún er búin að hanga s.l. daga. Alveg ferlega pirrandi. Það er ekkert voðalega hvetjandi þegar maður fær engan ávinning. Er svo sem ekki búin að komast mikið í ræktina, en mér er alveg sama, það á ekki að muna svo miklu. Er samt ekki að gefast upp, held í einhverja von um að vigtin fari aftur af stað.
6 október, 2008 klukkan 8:02 pm |
stíga sjaldnar á viktina
samt vill maður sjá heví árangur STRAX og svona… þekki þetta alveg og hægara sagt en gert að fara sjaldnar á stefnumót við Viktoríu
þetta kemur allt saman í rólegheitunum
amk er ég að reyna að segja það við sjálfa mig
hahahah góðir hlutir gerast hægt og allt það 
knús í klessu á þig!!!
6 október, 2008 klukkan 8:07 pm |
Úff hvað ég þekki þetta, hef ekki hreyfst neitt á vigtinni í heilt ár, bara upp og niður um 2 – 3 kg, kemur alltaf jafnharðan á mig og fer ekki neitt, ég er alveg að bugast, en neita að gefast upp, þetta kemur hjá okkur!!!!!
6 október, 2008 klukkan 10:45 pm |
Vigtin getur verið svolítið hættuleg. Ég get ekki vanið mig af því að vigta mig á hverjum morgni. Samt er ég ekkert að miða við töluna sem ég sé þar heldur bara við “opinberu” vikulegu vigtunartöluna en mér finnst bara svoooooo gott að vigta mig á morgnana.
En já, ég hef enga trú á öðru en að vigtin fari að taka sprett hjá þér
Pitsurnar hafa ótrúlega mikil áhrif svo vonandi verður bara meiri árangur hjá þér í næstu viku.
7 október, 2008 klukkan 9:37 pm |
Ég er orðin mun rólegri á vigtinni en ég var, en þessi pirringur hefur ekkert með það að gera að vigta sig daglega. Ég sé bara svipaða tölu enn og fyrir ca 2-3 vikum. Rúlluðu af mér 3-4 kg fyrstu vikuna, en síðan bara varla neitt. Og ég ER búin að vera dugleg. En sjáum hvað setur.