Ekki komst ég í ræktina í gær. Það var bara eitthvað svo voða mikið að gera. Var að væflast með vinkonu minni að versla, svo þurfti ég að sækja krakkana og síðan skutlast með þau fram og til baka í íþróttir og tómstundir. Síðan var námskynning í skóla elstu stelpunnar sem ég mætti á og þá var ég komin með svo dúndrandi ógeðslegan hausverk að ég hélt að höfuðið á mér myndi klofna í tvennt. Ég er enn með höfuðverkjaseiðing í dag, samt ekki nærri eins slæm og í gær. En það var eiginlega sama sagan með ræktina í dag, var að sækja og skutla börnum og bara klukkan orðin svo margt þegar allt þetta stúss var búið að ég nennti ekki. En þau eru nú að fara til pabba síns og þá ætti ég að geta komið mér af stað. Svo er elstan mín í dansi í World Class á mánudögum og miðvikudögum og ég ætla bara að stefna á að fara í ræktina á meðan hún er þar, svona allavegana þegar yngri krakkarnir eru hjá pabba sínum. Kærastinn minn er nefninleg svo oft að vinna seinnipartinn og fram á kvöld þessa dagana, að ég hef ekki alveg sömu pössun og áður. En ég á eftir að koma þessu öllu í skipulag og rútínu
Mataræðið var mjög fínt bæði í gær og í dag. Sjáum hvað setur
Búría skrifaði