Hádí!

25 september, 2008

Hér gengur bara allt vel. Er búin að vera dugleg í mataræðinu og það hentar mér rosalega vel að fá mér léttan próteindrykk sem millibita frekar en að fara í brauðið eða eitthvað annað. Fór og fjárfesti í þessum æðislega blandara og nú get ég gert mér allskonar drykki. Vinkona mín er að selja Herbalife, og ég ætla að kaupa dunk af henni og fá mér svona hristing á milli hádegisverðar og kvöldmatar. Ég keypti líka af henni spes prótínduft sem maður setur líka út í til að auka aðeins prótínmagnið, en það náttúrulega veldur meiri saðsemistilfinningu.

Fór í ræktina á mánudaginn og í gær og stefni auðvitað að fara meira í vikunni. Elstan mín er í dansi í World Class á þessum dögum frá 19:35-20:35 og það er voða hentugt að skutla henni, fara sjálf í ræktina á meðan hún er í dansinum, og svo förum við saman heim. Gasalega sniðugt.

En já, ég mæli enn með saltfisknum góða ;)


Enn bíður ræktin

21 september, 2008

Og það er nú eiginlega bara vegna smá leti í mér. Á föstudaginn var ég reyndar með krakkana þar sem pabbi þeirra var að fara í óvissuferð með vinnunni. Þannig að það var skutl og sækj eins og venjulega út af fimleikunum ;) Síðan var bara kósíkvöld hjá okkur, horft á mynd og höfðum það voða næs. Samt engin óhollusta hjá mér :D

Í gær var ég bara svolítið dugleg og tók til, þreif ísskápinn, flokkaði þvottafjallið og fór síðan að undirbúa smá matarboð sem ég var með. Hafði voða góðan mat og drakk ótæpilega af hvítvíni og bjór :S En fyrir utan það var dagurinn bara nokkuð hollur. Fékk mér reyndar slatta af hnetum og rétturinn sem ég eldaði innihélt nú ansi mikið af olíu, en hann var samt hollur. Eldaði saltfisk á Miðjarðarhafsvísu og vááááá hvað þetta var hrikalega gott. Hef fengið svona Bacalhau á veitingastað, en ég get svo svarið það að það sem ég eldaði var miklu betra. Þið bara verið að fá uppskriftina og prófa:

Saltfiskur á miðjarðarhafsvísu

800 gr sérútvatnaður saltfiskur
hveiti, eftir þörfum
hvítur pipar

1/2 hvítlaukur
1/2 dl olía
1 dós niðurskorinn tómatur
1 krukka svartar ólífur
1 rauðlaukur
1/2 krukka kapers
1/2 krukka feta ostur í olíu

Þerrið fiskinn og veltið upp úr hveiti og pipar
Brytjið hvítlaukinn mjög smátt og mýkið örlítið í olíunni, veltið saltfisknum uppúr í smástund.

Setjið fiskinn í eldfast mót.
Dreifið tómatnum vel yfir saltfiskinn, sneiðið ólífur og rauðlauk og dreifið yfir auk kapers og að lokum feta ost. Ekki spara olíuna.

Bakið í ofni við 180°C í ca 10-12 mínútur

Ég notaði reyndar spelt í stað hveitis, einfaldlega vegna þess að ég nota eiginlega bara alltaf spelt í stað hveitis ;)

En suss hvað þetta var gott. Hafði með þessu svona litlar Parísarkartöflur sem ég hitaði í smá olíu á pönnu og kryddaði með jurtakryddi og hvítlauksdufti. Og svo var ég með ferskt salat líka. Meira að segja unnustanum fannst þetta sjúklega gott, og hann er almennt ekki hrifinn af svona gumsi eins og fetaosti, ólívum og lauk, hehehe.

Í dag er bara smá þynnkudagur og ég er að vanda mig við að detta ekki í neina óhollustu. Vaknaði frekar seint og fékk mér bara afgangana af saltfisknum. Á eftir er okkur reyndar boðið í smá kaffiboð, en ég verð bara að reyna að vera dugleg og standast þær freistingar sem þar eru. Ég er nefninlega búin að vera ansi dugleg í mataræðinu s.l. daga, þó svo að ég sé ekki komin af stað í ræktinni.

Njótið dagsins ;D


Ræktin á hold

18 september, 2008

Ekki komst ég í ræktina í gær. Það var bara eitthvað svo voða mikið að gera. Var að væflast með vinkonu minni að versla, svo þurfti ég að sækja krakkana og síðan skutlast með þau fram og til baka í íþróttir og tómstundir. Síðan var námskynning í skóla elstu stelpunnar sem ég mætti á og þá var ég komin með svo dúndrandi ógeðslegan hausverk að ég hélt að höfuðið á mér myndi klofna í tvennt. Ég er enn með höfuðverkjaseiðing í dag, samt ekki nærri eins slæm og í gær. En það var eiginlega sama sagan með ræktina í dag, var að sækja og skutla börnum og bara klukkan orðin svo margt þegar allt þetta stúss var búið að ég nennti ekki. En þau eru nú að fara til pabba síns og þá ætti ég að geta komið mér af stað. Svo er elstan mín í dansi í World Class á mánudögum og miðvikudögum og ég ætla bara að stefna á að fara í ræktina á meðan hún er þar, svona allavegana þegar yngri krakkarnir eru hjá pabba sínum. Kærastinn minn er nefninleg svo oft að vinna seinnipartinn og fram á kvöld þessa dagana, að ég hef ekki alveg sömu pössun og áður. En ég á eftir að koma þessu öllu í skipulag og rútínu ;)

Mataræðið var mjög fínt bæði í gær og í dag. Sjáum hvað setur ;)


Lælælælæ :S

16 september, 2008

Það er alldeilis sem 1. september var góður byrjunardagur… á ENGU!!! Nibb, er bara búin að vera að vinna og vinnaog skutla börnum í skóla og íþróttir og tómstundir þess á milli og hef EKKERT farið í ræktina og EKKERT passað mataræðið. Elsku 75kg (hef því miður ekkert annað nafn á þig), TAKK fyrir að sparka í rassinn á mér með því að spyrja um mig. Ég var reyndar alltaf á leiðinni að fara að skrifa hér aftur og þegar ég sá kommentið frá þér þá dreif ég í því.

Ræktin á morgun og svo vonandi fleiri daga í vikunni.

Smúss, takk fyrir að gefast ekki upp á mér.