Humm humm!

Þetta gengur svona sæmilega, hefur alveg gengið betur. En ég er samt ekki að detta í sukkið. Fór ekki í ræktina miðvikudag og fimmtudag, en fór í gær. Mataræðið hefur verið svolítið upp og ofan. Fimmtudagurinn var hreint út sagt slæmur, datt algjörlega í eitthvað súkkulaði sem tengdó komu með að utan. Gærdagurinn var mun betri, en fékk mér samt hnetur og smá súkkulaðirúsínur. Svo fékk ég mér reyndar tvo lite bjóra um kvöldið. Vigtin haggast varla. Finnst það samt eiginlega fúlt því ég er svo langt frá ofursukkinu og ég er búin að taka vel á í ræktinni. En ég er ekkert að örvænta. Er enn á því að koma mér bara vel af stað í ræktinni og reikna svo með að mataræðið fylgi þá bara auðveldar á eftir. Þetta kemur allt.

3 svör to “Humm humm!”

  1. GUðbjörg Kr. segir:

    jæja… skvís.
    hvernig gengur???

  2. 75kg segir:

    Þetta kemur, allt í einu búmm þegar þú stígur á vigtina ertu búin að léttast eitthvað!! Við getum þetta!!! :)

  3. Petrína segir:

    Flott að þú sért komin í gang aftur! Hlakka til að fylgjast með þér hérna :)

Skildu eftir svar