Ég fór ekki í ræktina í gær. Var enn með svo slæmar harðsperrur að ég ákvað að það væri skynsamlegra að gefa mér einn dag enn til að jafna mig. En svo fórum við í morgun og gerðum fínar æfingar. Tókum því samt aðeins rólegar núna til að gera ekki alveg út af við mig, enda líður mér bara æðislega núna
Svo erum við að hugsa um að fara í pallatíma á morgun
Síðan fór ég með ungana að versla skóladót. Arna er að byrja í þriðja bekk og Hjalti er sko að byrja í fyrsta
Svaka spennandi. Svo á ég reyndar eftir að fara og versla fyrir Elísu, sem er að byrja í 8. bekk (OMG!). En það er sem sagt allt að falla í rútínu aftur hér á bæ.