Hjálpi mér!

Duglega ég fór aftur í ræktina í gær með vinkonu minni, þrátt fyrir að geta varla gengið fyrir harðsperrum. Voru nú ekki að taka sömu vöðvahópana og á fimmtudaginn, en tókum vel á öðrum í staðin. Fórum svo í Spa-ið á eftir, sem var rosalega næs :D Mataræðið er líka fínt, nema að ég verð að viðurkenna að ég stóðst ekki nammifreistingu í vinnunni í gær, en það voru fullar skálar af sælgæti út um allt. Sleppti samt að panta pizzu með hinum og fékk mér bara grænmetisrétt frá Móður Náttúru.

En óboj, óboj, ég er enn með harðsperrur í dag og nýjar að auki. Ég er bara ekki viss um að þetta sé sniðugt. En það er samt planið að fara í ræktina á morgun aftur og þá held ég að við gerum sömu æfingar og við gerðum fyrst. Ef ég verð gjörsamlega dauð eftir þá æfingu líka þá verð ég að slaka aðeins á.

En ég verð að viðurkenna að ég er pínu fúl yfir að sjá ekki meiri hreyfingu á vigtinni. Hef yfirleitt séð hraða niðurleið fyrstu vikuna eftir að ég byrja í átaki eftir sukk, en það er ekki alveg að skila sér núna :S En jæja, ég er nú bara rétt byrjuð.

Á eftir erum við að fara í barnaafmæli, pönnsur og svona, og mér finnst bara ekkert þægilegt að þurfa að fara. Langar ekki að klúðra mataræðinu, langar samt ekki að vera dóni og mæta ekki, en svo veit ég að þegar ég mæti verður líka pressa á mann að fá sér eitthvað. Well, það kemur í ljós hvað gerist.

En þar til að ég þarf að fara í afmælið ætla ég bara að liggja hér í sófanum og helst ekki hreyfa mig neitt, því ég er með svo miklar harðsperrur :S

2 svör to “Hjálpi mér!”

  1. 75kg segir:

    Æ hvað ég er ánægð að þú sért byrjuð aftur að blogga, og þú ert alveg ofsalega dugleg! :)

  2. Heiða segir:

    Hæhæ og velkomin aftur :) Blessuð vertu ekki svona meðvirk þeim sem er að halda afmælið að þú “neyðist” til að fá þér :) Fáðu þér bara kaffibolla… kemur öðrum ekkert við hvað þú étur!

Skildu eftir svar