Á á á á…

Harðsperrur dauðans og lurkum lamin. Fór í ræktina í gær og var gjörsamlega pínd áfram til helvítis af minni yndislegu vinkonu ;) Hún er æði. Alveg æðislegt að hafa svona ræktarbuddy sem gjörsamlega rekur mann áfram og er með allt á hreinu. Líka bara æðislegt að fá nýjar æfingar og breyta til. Við ætlum svo aftur á morgun. Var svo heppin að Securitas gaf mér, sem kúnna þeirra, tveggja vikna passa í Laugar-Spa og ég mátti bjóða einum gesti með, svo að ég bauð auðvitað vinkonu minni og nú ætlum við að taka næstu tvær vikurnar með trompi :D

Mataræðið gengur líka vel og ég finn að ég er að smella í gír. Er orðin mjög jákvæð og finn ekki lengur fyrir þessu ströggli og erfiði við að halda mataræðinu ágætu.

3 svör to “Á á á á…”

  1. Hérinn segir:

    Glæsilegt hjá þér :)

  2. Lilja segir:

    ég veit þú getur þetta :D ógeðslega ánægð með þig!!!
    knús í klesssssssuuuuuu

  3. Dídí segir:

    Já ræktarfélagi sem rekur mann áfram er gulls ígildi!

Skildu eftir svar