Harðsperrur dauðans og lurkum lamin. Fór í ræktina í gær og var gjörsamlega pínd áfram til helvítis af minni yndislegu vinkonu
Hún er æði. Alveg æðislegt að hafa svona ræktarbuddy sem gjörsamlega rekur mann áfram og er með allt á hreinu. Líka bara æðislegt að fá nýjar æfingar og breyta til. Við ætlum svo aftur á morgun. Var svo heppin að Securitas gaf mér, sem kúnna þeirra, tveggja vikna passa í Laugar-Spa og ég mátti bjóða einum gesti með, svo að ég bauð auðvitað vinkonu minni og nú ætlum við að taka næstu tvær vikurnar með trompi
Mataræðið gengur líka vel og ég finn að ég er að smella í gír. Er orðin mjög jákvæð og finn ekki lengur fyrir þessu ströggli og erfiði við að halda mataræðinu ágætu.
Búría skrifaði