Bögg bögg bögg

31 ágúst, 2008

Alltaf sama sagan af mér. Gengur vel í smá tíma og drulla svo upp á bak. Síðasta vika er bara búin að vera slæm. Og alltaf ætla ég samt að halda áfram og gefast ekki upp… er það bara rugl kannski? Er maður að eyða orku í vitleysu? Æ, nei. Andskotinn hafi það, ég hlýt að geta þetta á endanum. En ég verð að reyna að setja upp eitthvað plan. Er búin að vera að hugsa svolítið og ég er að spá í að taka bara burt öll föt sem mér líður ekki vel í og sem mér finnst gera mig feitari. Fókusera bara svolítið á útlitið, klæða mig smart og líða eins og ég sé algjör pæja… eða eitthvað þannig. Á morgun er 1. september, ágætis byrjunardagur. Ætla að fókusera á þetta næstu vikuna og einnig að fara í ræktina allavegana þrisvar sinnum, helst fjórum sinnum. Það verður takmarkið mitt næstu viku og ég ætla ekkert að gefa nein loforð um mataræðið núna.


Humm humm!

23 ágúst, 2008

Þetta gengur svona sæmilega, hefur alveg gengið betur. En ég er samt ekki að detta í sukkið. Fór ekki í ræktina miðvikudag og fimmtudag, en fór í gær. Mataræðið hefur verið svolítið upp og ofan. Fimmtudagurinn var hreint út sagt slæmur, datt algjörlega í eitthvað súkkulaði sem tengdó komu með að utan. Gærdagurinn var mun betri, en fékk mér samt hnetur og smá súkkulaðirúsínur. Svo fékk ég mér reyndar tvo lite bjóra um kvöldið. Vigtin haggast varla. Finnst það samt eiginlega fúlt því ég er svo langt frá ofursukkinu og ég er búin að taka vel á í ræktinni. En ég er ekkert að örvænta. Er enn á því að koma mér bara vel af stað í ræktinni og reikna svo með að mataræðið fylgi þá bara auðveldar á eftir. Þetta kemur allt.


Allt í gúddí

19 ágúst, 2008

Ég fór ekki í ræktina í gær. Var enn með svo slæmar harðsperrur að ég ákvað að það væri skynsamlegra að gefa mér einn dag enn til að jafna mig. En svo fórum við í morgun og gerðum fínar æfingar. Tókum því samt aðeins rólegar núna til að gera ekki alveg út af við mig, enda líður mér bara æðislega núna :D Svo erum við að hugsa um að fara í pallatíma á morgun ;)

Síðan fór ég með ungana að versla skóladót. Arna er að byrja í þriðja bekk og Hjalti er sko að byrja í fyrsta :D Svaka spennandi. Svo á ég reyndar eftir að fara og versla fyrir Elísu, sem er að byrja í 8. bekk (OMG!). En það er sem sagt allt að falla í rútínu aftur hér á bæ.


Hjálpi mér!

17 ágúst, 2008

Duglega ég fór aftur í ræktina í gær með vinkonu minni, þrátt fyrir að geta varla gengið fyrir harðsperrum. Voru nú ekki að taka sömu vöðvahópana og á fimmtudaginn, en tókum vel á öðrum í staðin. Fórum svo í Spa-ið á eftir, sem var rosalega næs :D Mataræðið er líka fínt, nema að ég verð að viðurkenna að ég stóðst ekki nammifreistingu í vinnunni í gær, en það voru fullar skálar af sælgæti út um allt. Sleppti samt að panta pizzu með hinum og fékk mér bara grænmetisrétt frá Móður Náttúru.

En óboj, óboj, ég er enn með harðsperrur í dag og nýjar að auki. Ég er bara ekki viss um að þetta sé sniðugt. En það er samt planið að fara í ræktina á morgun aftur og þá held ég að við gerum sömu æfingar og við gerðum fyrst. Ef ég verð gjörsamlega dauð eftir þá æfingu líka þá verð ég að slaka aðeins á.

En ég verð að viðurkenna að ég er pínu fúl yfir að sjá ekki meiri hreyfingu á vigtinni. Hef yfirleitt séð hraða niðurleið fyrstu vikuna eftir að ég byrja í átaki eftir sukk, en það er ekki alveg að skila sér núna :S En jæja, ég er nú bara rétt byrjuð.

Á eftir erum við að fara í barnaafmæli, pönnsur og svona, og mér finnst bara ekkert þægilegt að þurfa að fara. Langar ekki að klúðra mataræðinu, langar samt ekki að vera dóni og mæta ekki, en svo veit ég að þegar ég mæti verður líka pressa á mann að fá sér eitthvað. Well, það kemur í ljós hvað gerist.

En þar til að ég þarf að fara í afmælið ætla ég bara að liggja hér í sófanum og helst ekki hreyfa mig neitt, því ég er með svo miklar harðsperrur :S


Á á á á…

15 ágúst, 2008

Harðsperrur dauðans og lurkum lamin. Fór í ræktina í gær og var gjörsamlega pínd áfram til helvítis af minni yndislegu vinkonu ;) Hún er æði. Alveg æðislegt að hafa svona ræktarbuddy sem gjörsamlega rekur mann áfram og er með allt á hreinu. Líka bara æðislegt að fá nýjar æfingar og breyta til. Við ætlum svo aftur á morgun. Var svo heppin að Securitas gaf mér, sem kúnna þeirra, tveggja vikna passa í Laugar-Spa og ég mátti bjóða einum gesti með, svo að ég bauð auðvitað vinkonu minni og nú ætlum við að taka næstu tvær vikurnar með trompi :D

Mataræðið gengur líka vel og ég finn að ég er að smella í gír. Er orðin mjög jákvæð og finn ekki lengur fyrir þessu ströggli og erfiði við að halda mataræðinu ágætu.


Komin enn og aftur

13 ágúst, 2008

Jájá, ég er hér enn. Fór í sumarfrí austur á Egilsstaði stuttu eftir að ég skrifaði síðar, ákveðið með stuttum fyrirvara, svo rútínan mín komst ekkert í gang eins og ég ætlaði. Tókst náttúrulega að éta á mig nokkur kíló þar og er bara eiginlega í nákvæmlega sömu sporum og eftir sumarið í fyrra. Frekar ömurlegt að vera búin að eyða heilu ári í aðhald, ganga vel, komast niður í 85 kg og klúðra því svo öllu aftur. En vissulega hjálpar ekkert að væla yfir því. Nú er ég byrjuð aftur, farin að skrifa niður það sem ég borða og vinkona mín, sem er einkaþjálfari, ætlar að kíkja reglulega yfir matardagbókina mína. Fínt aðhald í því. Svo ætlar hún að gera nýtt prógramm í ræktina fyrir mig, er orðin svolítið leið á þessu gamla. Er ekki enn byrjuð í ræktinni, en planið er að fara á morgun, og þá ætlar þessi vinkona mín að koma með.

Ég á alveg að geta þetta. Langar ansi mikið að passa í flottu fötin mín aftur.