Oooooooh!!!

Jújú, ég fór í ræktina í gær og stóð mig vel í mataræðinu þar til ég fór í saumó. Byrjaði svo sem vel, en stóðast síðan ekki mátið og fékk mér smá skyrtertu, smá nachos og smá nammi. Alls ekkert mikið, en samt greinilega nóg til að klúðra kolvetnissnauða dæminu og bæta á mig 2 kg aftur. Þar með rifjaðist það upp fyrir mér hvað var leiðinlegast við þetta kolvetnissnauða fæði, það eru þessi 2 platkíló eða vatnskíló sem fara strax og maður fer á kolvetnissnautt, en koma líka strax aftur um leið og líkaminn fær nóg af kolvetni til að byggja upp forða. Þá bindur hann nefinlega vatn við kolvetnið til að geyma það, sem eru einmitt ca 2 kg. Steig á vigt í morgun og langaði hálfpartinn til að stökkva bara út um gluggann. Ætla samt að halda eitthvað áfram í þessu kolvetnissnauða.

En hey, ég fór í ræktina.

10 svör to “Oooooooh!!!”

  1. 15kg segir:

    Hrós fyrir ræktina :) Haltu áfram stelpa!

  2. 75kg segir:

    Góð að fara í ræktina, það getur verið ofsalega erfitt ef maður er ekki í stuði og nennir alls ekki!!! Þú getur þetta alveg, fyrstu dagarnir eru bara svo helvíti erfiðir, en ég VEIT að þú getur þetta og ÞÚ veist það líka!!!! :)

  3. Glóin segir:

    Hehe, við stóðum okkur ógó vel framan af… En skál fyrir ræktinni alla vega!
    Glóin

  4. 75kg segir:

    Hvernig gengur pæja, ertu ekki alveg að rúlla þessu upp????

  5. GBK segir:

    við rúlla þessu upp…… rosa duglegar.

    :) knús á þig

  6. Heiða segir:

    Ekki láta vigtina taka þig svona svakalega á sálfræðinni :) Halda áfram. Þetta kemur :) Vitum alveg að þú getur þetta… þarft bara að koma þér í rythmann.

  7. liljan... segir:

    saeta min!!! eg kem heim a morgunn og ta skulum vid taka a stora feita okkar :D sjalf hef eg verid mjog feit og fin i utlandinu…. skal taka mig a :D
    getum detta saman!!!
    knus i kless…

  8. GBK segir:

    konahhh……..

    ekki hætta…

  9. Heiða segir:

    Jæja hvernig gengur? Veit það er hundleiðinlegt að blogga ef það gengur ekki vel… en það gæti orðið til þess að komast í gírinn :) Vonast til að heyra frá þér!

  10. 75kg segir:

    Koma svo, þú getur þetta, við verðum að hamast í gegnum þetta saman!!! Í alvörunni þá veit ég svo vel að þú getur þetta!!! :)

Skildu eftir svar