Mér tekst þetta enn sem komið er, samt erfitt :S Er alveg búin að vera að reyna að finna allar afsakanir í hausnum á mér til að fara ekki í ræktina, en ætla ekki að láta undir og ætla bara að drífa mig um leið og iPodinn minn er búinn að hlaðast. Mataræðið gengur alveg ágætlega. Ég er reyndar ekki alveg ofurströng á kolvetnið eins og ég var í denn, en reyni samt að halda því í lágmarki, vil allavegana vera undir 100 grömmum á dag og helst vel það. Er reyndar að fara í saumó í kvöld, en verð bara að finna eitthvað sem ég get borðað með góðri samvisku. Langar að vera grönn, langar að vera grönn, ætla að verða grönn!!!
2 júlí, 2008 klukkan 8:41 pm
Þú verður grönn. Þú verður grönn. Þú verður grönn