En mér finnst þetta samt erfitt :S Ég finn það alveg, mig langar í eitthvað sætt og éta óhollustu og allt þetta. En ég hem mig, allavegana enn sem komið er. Ekki eru nú margir dagar liðnir svo sem.
Mataræðið var fínt í gær, endaði í ca 1250 hitaeiningum og 36 grömm kolvetni. Vonandi verður dagurinn í dag bara svipaður. Svo á morgun ætla ég að drífa mig í ræktina aftur, alveg kominn tími á það. Ferlegt að hugsa til þess að maður sé búinn að éta á sig a.m.k. 10 kg aftur síðan um páskana. Bjakk bara
Mig langar svo að verða grönn aftur, óþolandi að þetta skuli vera svona erfitt.
Jæja, ég stefni nú samt á að massa þetta bara, veit ég get þetta, þarf bara staðfestuna.
1 júlí, 2008 klukkan 6:29 pm |
gr já helv… kolvetnin. ég fór yfir 100 í dag….. stalst í brauð.
En verra gat það verið.
Mér finnst einmitt dálítið fínt að vera á svona kolvetnissnauðum. Nú er ég að fá móral og stelast í brauð, ávexti og þess háttar…. ekki nammi. Það er bara +
En auðvita mössum við þetta stelpa..
1 júlí, 2008 klukkan 6:43 pm |
Hehe, já. En seg mér, hvaða kolvetnismagn ert þú að miða við?
1 júlí, 2008 klukkan 8:47 pm |
Þetta er bara leiðinlegt fyrst … sem ég veit að þú veist alveg
Nammilöngunin hverfur fyrr en varir. Er líka viss um að hún hverfur fyrr ef þú skellir þér í ræktina. Mér finnst það allaveganna alltaf hjálpa.
2 júlí, 2008 klukkan 10:23 am |
Dugleg stelpa


Ertu til í að senda mér nokkra matseðla? Mér sýnist að ég verði að reyna e-a uppstokkun í mataræðinu til að ná e-m árangri
Þú ert alltaf velkomin með mér í ræktina
Glóin