So far so good

1 júlí, 2008

En mér finnst þetta samt erfitt :S Ég finn það alveg, mig langar í eitthvað sætt og éta óhollustu og allt þetta. En ég hem mig, allavegana enn sem komið er. Ekki eru nú margir dagar liðnir svo sem.

Mataræðið var fínt í gær, endaði í ca 1250 hitaeiningum og 36 grömm kolvetni. Vonandi verður dagurinn í dag bara svipaður. Svo á morgun ætla ég að drífa mig í ræktina aftur, alveg kominn tími á það. Ferlegt að hugsa til þess að maður sé búinn að éta á sig a.m.k. 10 kg aftur síðan um páskana. Bjakk bara :( Mig langar svo að verða grönn aftur, óþolandi að þetta skuli vera svona erfitt.

Jæja, ég stefni nú samt á að massa þetta bara, veit ég get þetta, þarf bara staðfestuna.