Þá byrjar ballið

Vaknaði samt allt of seint í morgun þannig að ég náði ekki að fá mér egg og beikon. En fékk mér bara ostbita og skinkusneið. Sjáum svo hvernig þetta gengur. Hef ekki alveg tíma fyrir ræktina strax, er að græja unglinginn fyrir Mallorcaferð sem hún er að fara í með pabba sínum. Hún fer á miðvikudagsmorguninn. Þá verð ég algjörlega barnlaus hér í tvær vikur, svei mér þá. Jæja, nenni ekki að blogga, bara láta vita af mér smá ;)

Ein ummæli to “Þá byrjar ballið”

  1. 75kg segir:

    Gangi þér rosalega vel, þú getur þetta og nú tökum við þetta með trompi, látum þetta verða síðasta árið sem við erum að berjast við þetta og komumst í kjörþyngd!!!! :)

Skildu eftir svar