Já, ég hef verið í þeim pakka undanfarið. Mér gengur ekkert að koma mér almennilega af stað. Oft byrja ég daginn með góðu hugarfari, stend mig vel fyrri hluta dags og svo þegar ég kem heim úr vinnunni klúðra ég öllu. Ég bara veit ekki alveg hvað ég á að gera. Eins kem ég mér ekki af stað í ræktina og er svo sannarlega ekkert léttari en síðast þegar ég bloggaði hér, eflaust bara þyngri.
En samt vil ég ekki gefast upp, ég held alltaf að mér hljóti að takast þetta á endanum. Nú ætla ég að fara aftur í kolvetnasnauða mataræðið í smá tíma. Ja, best að setja bara ákveðið tímamarkmið… segjum kolvetnasnautt fæði í 4 vikur og sjáum hverju það skilar. Svo fer ég nú bráðum að fara í sumarfrí og þar sem ég er ekkert að fara í neitt ferðalag þá leggst það mun betur í mig átakslega séð en áður. Ætti að geta haldið rútínunni að mestu… en þá er náttúrulega forsendan að koma sér í rútínu fyrst.
Jæja, frí í dag. Ég er reyndar drullusyfjuð og er að hugsa um að leggja mig í klukkutíma og drulla mér svo til að taka aðeins til hér heima. Kannski ætti ég svo að reyna að koma mér í ræktina á eftir.
25 júní, 2008 klukkan 1:43 pm |
Gaman að sjá þig aftur. Það þekkja þetta flestir held ég… byrja daginn vel og svo fer allt í óefni. En maður verður bara að minna sig á að þetta er bara erfiðast fyrst. Um leið og þú nærð 1-2 góðum dögum er ég viss um að þú finnur kraftinn aftur
Þú ert algjör skriðdreki þegar þú tekur þig til og svoleiðis hendist niður á vigtinni, þannig að ég hef alveg fulla trú á að þú getir þetta og gerir þetta!
27 júní, 2008 klukkan 10:13 am |
ferlegt að detta svona úr gírnum.
Ég rúllað af mér 6 kílóum í mai með kolvetnissnauðum. En niii… er auðvita búin að éta þrjú á mig aftur. Fór tilLondon og hef ekki komist í gírinn aftur.
á manudag fer ég í sumarfrí. þá ætla ég að byrja.
28 júní, 2008 klukkan 7:49 pm |
Hæ pæ, nú er ég komin með nýtt blogg og nú getum við þetta. Við mössum þetta saman, ekki nokkur spurning!!! Hér kemur ærlegt spark í rassinn frá mér og ég vænti þess að fá ærlegt spark í rassinn frá þér!!!!