Vaknaði samt allt of seint í morgun þannig að ég náði ekki að fá mér egg og beikon. En fékk mér bara ostbita og skinkusneið. Sjáum svo hvernig þetta gengur. Hef ekki alveg tíma fyrir ræktina strax, er að græja unglinginn fyrir Mallorcaferð sem hún er að fara í með pabba sínum. Hún fer á miðvikudagsmorguninn. Þá verð ég algjörlega barnlaus hér í tvær vikur, svei mér þá. Jæja, nenni ekki að blogga, bara láta vita af mér smá
Þá byrjar ballið
30 júní, 2008Eins og alkinn fyrir afvötnun
28 júní, 2008Það er góð lýsing á mér. Nú er ég búin að ákveða að taka þetta með trompi eftir helgi og byrja þá á kolvetnissnauða fæðinu. Nú um helgina er ég búin að sukka all verulega, detta í það og úða svo í mig pizzu og sælgæti. En ég er að birgja mig upp af heppilegu fæði í ísskápinn og svo byrja ég á mánudag. Þá verður líka gert plan fyrir ræktina. OG SPARK Í RASS Á MÉR OG YKKUR.
Vonlaus og óánægð
25 júní, 2008Já, ég hef verið í þeim pakka undanfarið. Mér gengur ekkert að koma mér almennilega af stað. Oft byrja ég daginn með góðu hugarfari, stend mig vel fyrri hluta dags og svo þegar ég kem heim úr vinnunni klúðra ég öllu. Ég bara veit ekki alveg hvað ég á að gera. Eins kem ég mér ekki af stað í ræktina og er svo sannarlega ekkert léttari en síðast þegar ég bloggaði hér, eflaust bara þyngri.
En samt vil ég ekki gefast upp, ég held alltaf að mér hljóti að takast þetta á endanum. Nú ætla ég að fara aftur í kolvetnasnauða mataræðið í smá tíma. Ja, best að setja bara ákveðið tímamarkmið… segjum kolvetnasnautt fæði í 4 vikur og sjáum hverju það skilar. Svo fer ég nú bráðum að fara í sumarfrí og þar sem ég er ekkert að fara í neitt ferðalag þá leggst það mun betur í mig átakslega séð en áður. Ætti að geta haldið rútínunni að mestu… en þá er náttúrulega forsendan að koma sér í rútínu fyrst.
Jæja, frí í dag. Ég er reyndar drullusyfjuð og er að hugsa um að leggja mig í klukkutíma og drulla mér svo til að taka aðeins til hér heima. Kannski ætti ég svo að reyna að koma mér í ræktina á eftir.
Búría skrifaði
Búría skrifaði
Búría skrifaði