Ó vá, rosa frumlegar fyrirsagnir, haha. En ég hef afsökun, nývöknuð eftir næturvakt og ansi mygluð.
En gærdagurinn gekk vel og ekkert óþarfa snarl á næturvaktinni. Steig á vigtina aftur núna þegar ég vaknaði og þá sýndi hún 92 kg. Smááááá munur. Þarna sjáið þið hvað sukkið getur sest á mig á no time og valdið vökvasöfnun eða einhverju, og svo getur þetta runnið af mér á no time aftur. Þ.e. sukk-kílóin. Ég held að þessi þyngd sé nærri lagi hvað ég er í raun og veru þung eftir þetta ljóta tveggja mánaða óhemjulíferni mitt undanfarið. En ég dreif mig í ræktina í gær. Tók samt ekkert ofurtíma, púlaði bara í 45 mínútur á Cross Trainernum og lét það duga í þeta sinn.
En það er mikill léttir fyrir sálina að vera komin aftur af stað, mér líður miklu betur þegar ég passa mig að borða hollt og hreyfi mig
Önnur næturvakt í nótt… stefni á að fara í ræktina aftur á eftir, en eins og er þá meika ég það ekki. Er allt of illa sofin, enda vaknaði ég rétt eftir hádegi við það að nágranninn var kominn með vélsögina út í garð að snyrta trén. Svo sem bara hið besta mál þannig séð að snyrta garðinn, en ekki gott fyrir svefninn minn. Ræni mér eyrnatöppum í vinnunni í nótt svo ég geti sofið eftir vaktina á morgun
Túrílú ;D
6 maí, 2008 klukkan 4:46 pm |
Sukkkílóin eru frekar spes. Þau koma og fara fljótt.
Þú verðu fljót að sjá 8 fremst á viktinni aftur.
Smá forvitni.
Þegar þú varst í kolvetnis….. aðhaldi. Hvar fékkstu þessar vörur sem þu varst að nota? eru þær bara til úti?
6 maí, 2008 klukkan 4:49 pm |
Þegar ég var í þessu sem allra mest þá bjó ég í Noregi, en fékk margt sent frá Íslandi. Fékkst mikið í Hagkaup á þeim tíma. Eitthvað aðeins í heilsubúðum þarna úti og svo eru vörurnar hans Fedon Lindbergs þarna úti oft kolvetnasnauðar… miðaðast aðallega við lágan sykurstuðul.
7 maí, 2008 klukkan 1:35 pm |
ég vissi að u gætir komið þér af stað
fór amk ekki fyrir þér eins og samstarfsfélaga þínum að sofa yfir sig
við getum alllllltttttt!!!!!
vonandi hefuru getað sofið