Alveg að koma helgi

9 maí, 2008

Dagurinn í gær gekk vel fyrri part dags, en seinni hlutann hallaði vel undir fæti. Það var uppskeruhátíð hjá púkunum mínum í handboltanum og þar var þetta fína hlaðborð og ég stóðst ekki alveg freistingarnar. Síðan seinna um kvöldið fór ég á kynningu hjá vinkonu minni og úðaði í mig lakkrís… kommon, hann er bara hættulega góður. En í dag er ég aftur komin í hollustuna og stefni á að halda deginum þannig. Ekki hafði ég tíma til að fara í ræktina í gær, en vonandi næ ég að fara á eftir.


Engir magavöðvar :S

7 maí, 2008

Eða kannski er ég bara tognuð í maganum. Allavegana fór ég í ræktina áðan og þegar ég ætlaði að gera magaæfingar bara gat ég það ekki því ég fékk svo mikla svona tognunarverki neðst í maganum. Ja, reyndar gerði ég einhverjar magaæfingar sem reyndu minna á akkurat þetta svæði, en þetta var voða skrýtið :S Ekki er ég beint búin að reyna mikið á kviðvöðvana undanfarið.

En jájá, mataræðið er fínt, hreyfingin fín, þannig að þetta er allt í rétta átt. Verð ég svo ekki bara að líta á það sem svo að nú hef ég alveg rosa fínan tíma til að koma mér í geggjað form fyrir brúðkaup 2009? ;)


Dagur 2

6 maí, 2008

Ó vá, rosa frumlegar fyrirsagnir, haha. En ég hef afsökun, nývöknuð eftir næturvakt og ansi mygluð.

En gærdagurinn gekk vel og ekkert óþarfa snarl á næturvaktinni. Steig á vigtina aftur núna þegar ég vaknaði og þá sýndi hún 92 kg. Smááááá munur. Þarna sjáið þið hvað sukkið getur sest á mig á no time og valdið vökvasöfnun eða einhverju, og svo getur þetta runnið af mér á no time aftur. Þ.e. sukk-kílóin. Ég held að þessi þyngd sé nærri lagi hvað ég er í raun og veru þung eftir þetta ljóta tveggja mánaða óhemjulíferni mitt undanfarið. En ég dreif mig í ræktina í gær. Tók samt ekkert ofurtíma, púlaði bara í 45 mínútur á Cross Trainernum og lét það duga í þeta sinn.

En það er mikill léttir fyrir sálina að vera komin aftur af stað, mér líður miklu betur þegar ég passa mig að borða hollt og hreyfi mig ;)

Önnur næturvakt í nótt… stefni á að fara í ræktina aftur á eftir, en eins og er þá meika ég það ekki. Er allt of illa sofin, enda vaknaði ég rétt eftir hádegi við það að nágranninn var kominn með vélsögina út í garð að snyrta trén. Svo sem bara hið besta mál þannig séð að snyrta garðinn, en ekki gott fyrir svefninn minn. Ræni mér eyrnatöppum í vinnunni í nótt svo ég geti sofið eftir vaktina á morgun ;)

Túrílú ;D


Dagur 1

5 maí, 2008

Jæja, þá er baráttan hafin að nýju. Kræst sko, ég herti mig nú upp og steig á vigt í morgun og ooooojbarasta. Þar blasti við mér talan 95,6 kg. Mér finnst þetta alveg klikkun að geta bætt á sig svona miklu á skömmum tíma. Um daginn þegar ég steig á vigtina var hún þó bara í rúmlega 91. En ég á að vita þetta, ég get blásið út á nokkrum dögum ef ég er í einhverju ferlegu sukki. Vonandi renna bara mörg sukk-kílóa af mér sem allra fyrst. Þetta var nú svo sem ekki til að hressa mann við, en það er þá líka eins gott að fara að snúa þessu við.

En ég er búin að vera alveg rosalega dugleg í mataræðinu í dag og hef verið svolítið meðvitað að velja mér kolefnissnautt fæði þegar ég get. Er samt ekki á neinum kúr, bara reyni að passa kolvetnin aðeins. Ég stefni síðan á að fara í ræktina á eftir, púff, það verður stuð eftir um tveggja mánaða hreyfingarleysi :S Jájá, en það dugar ekkert annað ef maður ætlar að sigrast á þessu.

Púff, svo er ég strax farin að kvíða sumarfríinu. Hingað til hefur mér aldrei tekist að halda þyngdinni í fríum, hafið þið einhver ráð? Svo ég blási ekki aftur út um 10 kg strax eftir að ég næ 85 kg takmarkinu… aftur.


Reyni að hökta af stað

2 maí, 2008

Já, það er svo sannarlega fljótgert að skemma fyrir sér. Er komin aftur yfir 90 kg og finn vel á fötunum hvað ég hef fitnað. Ég er að reyna að koma mér af stað aftur, hugsa að ég stefni á að byrja af krafti eftir helgi og nota helgina svolítið í að undirbúa mig. Það verður ekki merkilegra takmark hjá mér en að reyna að koma mér aftur í 85 kg fyrir sumarfrí, en ég fer í sumarfrí í byrjun júlí. Oh, ég finn svo vel hvað ég er öll blobby, þarf svo sannarlega að taka mig á, líður ekki vel svona.

Set inn tölur á mánudag eða þriðjudag, hversu ömurlegar sem þær verða :S