Ég er á lífi, gengur ekki rass, allt í rugli. Skrifa meira þegar ég fæ tölvuna mína úr viðgerð, en svona í stuttu máli þá fór allt í rugl í páskafríinu. Rétt eftir páska dó vinkona mín, bráðkvödd og ég var bara afskaplega upp og niður eftir það. Dóttir mín elsta var að greinast með ofvirkni og hvatvísi, ekki svo sem neitt sem kom mér á óvart, en samt voða mikið að hugsa um. Síðan að lokum ákváðum við að fresta brúðkaupinu sökum fjárhags í ljósi hækkandi lána og ástands í þjóðfélaginu, þannig að þar missti ég stóru gulrótina mína. Og til að alveg kóróna þetta stórslasaði ég tölvuna mína sem er núna í viðgerð. Ég hef ekkert bloggað, ekkert passað mataræðið, ekkert farið í ræktina og er bara í fitun.
Sem sagt, er bara á hraðri afturför, veit að ég þarf að stoppa þetta og koma mér af stað aftur, en það gengur erfiðlega. Vonandi ríf ég mig þó fljótlega upp úr þessu volæði aftur. Skal reyna að vera dugleg að blogga og koma mér í gírinn þegar ég fæ tölvuna aftur.
Búría skrifaði