Er farin að halda að ég sé bara lasin. Fór að sofa kl. 22 í gærkvöldi og svaf í ca 12 tíma. Lagði mig svo aftur rétt eftir hádegi og svaf í 1 1/2 tíma. Fór svo með kallinum og krökkunum niður á tjörn og labbaði aðeins þarna í bænum. Planið var svo að fara í ræktina, en þegar ég kom heim var mér bara skítkalt og ég er enn svo drulluþreytt og syfjuð að ég ligg hér bara undir sæng og teppi og dorma :S Annað hvort er ég bara lasin, eða þá að ég er gjörsamlega búin að ofkeyra mig í vinnu s.l. vikur og er að borga fyrir það núna. Sama hvort er, þá verð ég bara heima í dag og kvöld.
Búría skrifaði