Meiri leti…

14 mars, 2008

… eða eiginlega bara þreyta. Tók aukakvöldvakt beint eftir dagvinnuna í gær og svo var ég náttúrulega að vinna í morgun. Bara nenni engan vegin í ræktina núna. Nú vil ég bara sitja og slappa af og njóta þess að eiga frí. Er búin að vinna alveg slatta undanfarið. Ætla nú samt að reyna að drífa mig í ræktina á morgun ;) En ég er alveg sátt við að sitja heima núna, drulluþreytt og syfjuð ;) Stalst að vísu í smá lakkrískonfekt áðan :S En það var ekki mikið.