Leti leti leti

Jamm, ég nenni ekki í ræktina, og er eiginlega alveg sama og ekki með neitt samviskubit. Undanfarnir dagar hafa einkennst af “vinna og sofa” dæmi. Ætlaði eiginlega í ræktina í gær, en steinsofnaði seinnipartinn aftur og svaf alveg þar til ég þurfti að mæta á næturvaktina. Er svo sem ekkert að fara á næturvakt í nótt, bara venjulega dagvakt í fyrramálið, en mig langar bara að eyða kvöldinu í rólegheitum með kallinum og gelgjunni. Ja, gelgjan er í tölvunni núna, en ég var að hjálpa henni áðan með ritgerð og það var bara voða gaman. Allavegana ætla ég bara að slappa af í kvöld. Ég get bara farið á morgun og svo eitthvað um helgina, er ekki að vinna núna.

Svo er nú bara að styttast í páskafrí og við ætlum að fara austur á Egilsstaði að heimsækja tengdó. Það verður dágóð keyrsla, en það er alltaf svo notalegt að heimsækja þau. Gelgjan ætlar að vísu að fara með foreldrum mínum í sveitina í páskafríinu, svo að það verða bara þau yngri tvö sem koma með austur.

Sit hér í Lay-Z-Boy og hef það gott. Nýbúin að borða kvöldmat, bara kjúlli og núðlur í súrsætri sósu, fínt alveg ;) Fékk komment í vinnunni s.l. nótt að ég væri greinilega að leggja af ;)

6 svör to “Leti leti leti”

  1. MjónaN segir:

    Hihi svo gaman að fá svona komment, get ekki beðið eftir að ég fari að fá svona :)

    Gott að eiga svona leti daga þegar maður á það skilið, þá eins og þú segir fær maður bara alls ekkert samviskubit:) Enda þarf kroppurinn smá hvíld stundum líka :)

  2. Glóin segir:

    Oh, frábært kommennt :-)
    Ég vona að það fari bráðum að sjá á mér líka :-)
    Knús, Glóin

  3. Dídí segir:

    Stundum verður maður aðeins að tjilla, engin leti, heldur bara lífsnauðsynlegt. :)

  4. 75kg segir:

    Hey, ég er einmitt líka að fara á egilsstaði að heimsækja tengdó :)

  5. Guðbjörg Kr. segir:

    aæjjj.. letin getur líka stundum verið kærkominn :)

    Er kallinn að austan?
    Hvaða árgerð er hann?
    Ég bjó nebblega á Egilss einu sinn :)

  6. Búría segir:

    Já kallinn er frá Egilsstöðum, 73 módelið ;) Maður nær sér bara í einn svona “ungan”.

Skildu eftir svar