Úff og púff

Fimmtudagur, börnin hjá mér… jamm, það er þessi dagur í dag. En fyrir utan þetta venjulega skutla og sækja stúss, þá var bara gærdagurinn ansi strembinn líka. Ég fór í brúðarkjólaleiðangur fyrir hádegi og var að því til svona 14. Mátaði kjóla í Tveimur Hjörtum og þar var einn sem mér leist ágætlega á. Ekki alveg draumakjóllinn, en ansi nálægt því. Svo kíkti ég aðeins í Prinsessuna, og þar var kjóll sem var mjög líkur draumakjólnum mínum, en það er bara svo öðruvísi efni og þéttleiki í þessum brúðarkjólum, heldur en svona “venjulegum” samkvæmiskjólum. Brúðarkjólarnir sitja mikið betur og halda löguninni mun betur og lengur. Kíkti svo aðeins í kaffi til vinkonu minnar og fór svo heim.

Yngri stelpan fór í fimleika kl 17 í gær og ég skutlaði henni og fór síðan klukkutíma síðar með eldri stelpunni á bekkjarkvöld, sem var bara mjög gaman. En þegar ég kem heim þá segir kærastinn mér að þegar hann sótti Örnu á fimleikaæfingu þá kom ansi alvarlegt atvik upp á. Ungur drengur féll úr köðlunum og missti meðvitund og fór í öndunarstopp eða hjartastopp… ja eða bæði. Fyrst var haldið að þetta væri slys, en síðar kom í ljós að drengurinn hafði fengið heilablæðingu og líklega var það þess vegna sem hann datt. Hann liggur nú þungt haldinn á gjörgæsludeild og óvíst með framhaldið :( Ég fór með Örnu, og reyndar Hjalta líka, því hann var þarna á staðnum þegar þetta gerðist, á svona samkomustund í Gerplu áðan. Þar spjallaði prestur aðeins við okkur og beindi sérstaklega orðum til krakkanna. Þetta er bara rosalega sorglegt og maður hugsar mikið til þessa drengs ásamt foreldra hans og fjölskyldu.

Ótrúlegt en satt, þá dreif ég mig í ræktina eftir bekkjarkvöldið í gær, en í kvöld bara hafði ég ekki orku. Er síðan að vinna alla helgina, en vöktunum mínum var breytt þannig að ég ætti að komast í ræktina allavegana á sunnudeginum… kannski á laugardeginum líka.

Mataræðið hefur verið mjög fínt og ég hef laumast á vigtina aðeins og er bara sátt við það sem ég sé.

Vona að þið hafið það allar (öll) gott. Ég finn svo mikið fyrir því á svona stundum hvað maður er ótrúlega heppinn að eiga heilbrigð börn sem eru bara lúrandi inni í rúmi, eða að dunda sér fyrir framan tölvuna.

Ein ummæli to “Úff og púff”

  1. Dídí segir:

    Já, maður heyrði af þessu. :( Ekki gaman. Maður getur þakkað fyrir hvern dag sem ættingjar manns hafa fulla heilsu og eru á lífi. Maður verður að lifa fyrir daginn í dag því maður veit aldrei hvað morgundagurinn ber í skauti sér…

Skildu eftir svar