Brúðarkjólapælingar og fleira

4 mars, 2008

Náði að dorma í tvo tíma áður en ég rauk í brúðarkjólamátun hjá brúðarkjólaleigu Dóru. Það var eins og ég hélt, ekki mikið úrval af þeim stíl sem ég er að leita að. Var eiginlega frekar svekkt. Hún setti svo upp fyrir mig hvað það myndi kosta að sauma draumakjólinn minn og það er alveg um 85 þúsund kall. Kostar náttúrulega alveg 40-60 þúsund að leigja, svo það er alveg spurning hvað maður gerir. Ég á náttúrulega eftir að fara á fleiri leigur og svo athuga með saumastofur. Ef þið vitið um einhverja góða saumastofu, eða bara góða saumakonu sem væri til í að taka svona að sér, þá endilega bendið mér á. Ég alveg teiknaði upp kjólinn þegar ég kom heim svo nú er ég með það á blaði nánast nákvæmlega eins og ég vil hafa hann.

En mikið andskoti eru þessir brúðarkjólar annars klæðilegir og gera mann flottan ;D Maður verður alveg þvílíkt slim slim og sexí ;)

Reyndar þá var vigtin mun skemmtilegri við mig í dag, greinilega runnið ágætlega af mér. En ég ætla bara að setja inn tölu á morgun, þar sem dagurinn í dag er búinn að vera svo asnalegur upp á svefn og matmálstíma svo ég hef ekkert almennilegt viðmið.

Ætla að drífa mig í ræktina.