Ósanngjarnt!!!

Já, mér finnst djöfulli ósanngjarnt að vera búin að vera dugleg alla vikuna, taka svo einn sukkdag og þyngjast um rúm 2 kg fyrir vikið. Ótrúlegt að þetta sé hægt. Ég á nú svo sem að vita þetta, ég bæti svo auðveldlega á mig eftir svona óhollustudag, en mikið andskoti er þetta svekkjandi. Garg bara!!! Vonandi rennur eitthvað af þessu af mér í dag bara >:(

5 svör to “Ósanngjarnt!!!”

  1. Heiða segir:

    Þetta er pottþétt langmest vökvi. Tekur bara massaviku og færð góða niðurtölu næst :)

  2. Dídí segir:

    Já, þessi vökvasöfnun er svo leiðinleg, gefur manni svo leiðinlegan skell að sjá þetta á vigtinni. En eins og Heiða segir, þá er bara að taka pottþétta viku og þá lekur þetta af þér á nó tæm. ;)

  3. Gunný Kr. segir:

    já það er alveg merkilegt hvað sukkið margfaldast.
    Ég skil ekki lógígína við pizzu t.d. Ein sneið er kannski 250 gr. en verður kíló í maganum. Hvað er málið ?
    djös jös…..

  4. Rakel segir:

    sammála hinum, þetta er auðvitað hundfúlt, en bara líta á þetta sem smá kraft til að taka vel á því núna og þá rennur þetta af og vonandi meira til :)

    Gangi þér vel

  5. Igor segir:

    ciao! sono un blogger italiano…bello il tuo spazio, anche se capisco poco la lingua :-)

Skildu eftir svar