Það er alldeilis með þessi matarboð. Á fimmtudaginn var ég með matarboð fyrir tengdó, svo í gær vorum við í mat hjá mági mínum og í kvöld verð ég með matarboð fyrir frænku mína
Þetta er samt svo gaman. Svo er ágætt þegar maður hefur þetta sjálfur, þá hefur maður alveg fullkomna stjórn á matargerðinni. Annars var reyndar fínn matur í gær, nautakjöt og gott grænmeti. Reyndar voru djúpsteiktir kartöflubátar og einhver jömmí sósa, sem ég fékk mér nú samt. Passaði bara að borða ekki of mikið. Svo seinna um kvöldið fór ég á foreldrarölt fyrir Kársnesskóla og labbaði dágóðan hring, sem tók alveg hátt í 1 1/2 tíma, þannig að það var fín hreyfing. Fyrr um kvöldið (fyrir matarboðið) hafði ég farið í ræktina, þannig að ég held að ég geti alveg verið sátt við gærdaginn.
Ætla að taka mér frí í ræktinni í dag og fara þá frekar á morgun, eða bara á mánudaginn. Ætla að kaupa mér Lite bjór á eftir og í kvöld verður Mexíkóskur matur. Bara einhverjara svona Tortillur með nautakjötsstrimlum og grænfóðri. Jú, best að elda hrísgrjón líka
Búría skrifaði