16 mars, 2008
Jamm, þetta er samantekt af deginum í dag. Og tókuð þið eftir??? Engin rækt!!! Bleah! Jájá. Ég fer örugglega ekkert í ræktina fyrr en eftir páskafrí bara. Sem sagt, fyrri hluta dagsins stóð ég bara í þvottastússi, brjóta saman hreinan þvott og grynnka á þvottafjöllunum mínum, bæði þessu hreina og þessu óhreina. Maður verður víst að hafa föt til að fara með austur til tengdó. Fórum svo í heimsókn til mömmu og pabba og þar var kaffi með pönnsum og tilheyrandi. Fékk mér aðeins þar. Síðan í kvöld ákváðum ég og unnustinn að skella okkur í bíó, langt síðan síðast, og þar fékk ég mér Nachos og ostasósu, ásamt Maltesers. Enda er ég með gubbuna upp í kok núna. Ekki líst mér á að skoða árangur vikunnar á þriðjudaginn, heh. En svona er þetta, maður stundum gerir hluti gegn betri vitund.
Á morgun er ég að vinna eins og venjulega og tek svo eina næturvakt aðfaranótt þriðjudagsins, efast um að ég nenni, eða hafi tíma til að fara í ræktina þar á milli. Þurfum að klára að pakka niður fyrir ferðina austur, en við ætlum að leggja af stað á þriðjudagsmorgun þegar ég er búin á næturvaktinni, og ég sef bara á leiðinni
Nýta tímann sko, enda er þetta löng keyrsla. Ég ætla svo sannarlega að reyna mitt allra besta til að þyngjast ekki um of í fríinu. Er samt svo skeptísk því ég hef alltaf þyngst í svona fríum :S EN reyni samt. Þetta ætti nú ekki að vera allt of flókið. Get kannski reynt að fara í sund á kvöldin í stað þess að fara í ræktina hér. Sjáum til. Hlakka samt rosalega til að fara austur og slappa af
7 Ummæli |
Átaksfréttir |
Permalink
Búría skrifaði
12 mars, 2008
Jamm, ég nenni ekki í ræktina, og er eiginlega alveg sama og ekki með neitt samviskubit. Undanfarnir dagar hafa einkennst af “vinna og sofa” dæmi. Ætlaði eiginlega í ræktina í gær, en steinsofnaði seinnipartinn aftur og svaf alveg þar til ég þurfti að mæta á næturvaktina. Er svo sem ekkert að fara á næturvakt í nótt, bara venjulega dagvakt í fyrramálið, en mig langar bara að eyða kvöldinu í rólegheitum með kallinum og gelgjunni. Ja, gelgjan er í tölvunni núna, en ég var að hjálpa henni áðan með ritgerð og það var bara voða gaman. Allavegana ætla ég bara að slappa af í kvöld. Ég get bara farið á morgun og svo eitthvað um helgina, er ekki að vinna núna.
Svo er nú bara að styttast í páskafrí og við ætlum að fara austur á Egilsstaði að heimsækja tengdó. Það verður dágóð keyrsla, en það er alltaf svo notalegt að heimsækja þau. Gelgjan ætlar að vísu að fara með foreldrum mínum í sveitina í páskafríinu, svo að það verða bara þau yngri tvö sem koma með austur.
Sit hér í Lay-Z-Boy og hef það gott. Nýbúin að borða kvöldmat, bara kjúlli og núðlur í súrsætri sósu, fínt alveg
Fékk komment í vinnunni s.l. nótt að ég væri greinilega að leggja af
6 Ummæli |
Átaksfréttir |
Permalink
Búría skrifaði
9 mars, 2008
Jæja, þá er maður búinn með törnina í bili. Vann eiginlega heilan sólarhring á föstudaginn fyrir utan þriggja tíma frí sem ég fékk á milli tveggja vakta. Annars var ég bara að vinna frá 8-8. Síðan tók ég 12 tíma næturvakt síðustu nótt, frá 20-8, en komst reyndar ekkert burt fyrr en 8:30. Ég var að vakna núna og er bara nokkuð hress. Meikaði engan vegin ræktina í gær, enda svaf ég til 16:30 eftir sólarhringstörnina mína og mætti svo aftur í vinnuna 3 1/2 tímum síðar. En ég ætla að reyna að fara á eftir þegar ég er búin að hrista aðeins af mér slenið. Þarf að vísu að sækja stóru stelpuna mína þegar hún kemur að norðan á eftir, hún var nefninlega í kórferðalagi um helgina, en ég veit ekki alveg hvenær þau koma í bæinn. Einhverntíman um kl. 18. Bara spurning hvort ég nái að ræktast á undan eða á eftir. Vil síður vera í ræktinni akkurat þegar hún kemur, þá er enginn bíll heima til að ná í hana.
Á föstudagskvöldið var árshátíð slysó og deildin bauð okkur sem voru að vinna upp á pizzu í kvöldmat, svona aðeins til að létta okkur lundina
Þannig að ég át pizzu á föstudagskvöldið, en það hefur samt ekk haft nein áhrif á vigtina, enda var ég ekkert að missa mig. Að öðru leyti hef ég bara staðið mig nokkuð vel, svo sem bara alltaf óregla á máltíðunum þegar ég vinn næturvaktir, enda ekki annað hægt. En ef ég klúðra ekki málum í dag eða á morgun þá ætti ég að fá góða tölu á vigtinni á þriðjudaginn
4 Ummæli |
Átaksfréttir |
Permalink
Búría skrifaði
6 mars, 2008
Fimmtudagur, börnin hjá mér… jamm, það er þessi dagur í dag. En fyrir utan þetta venjulega skutla og sækja stúss, þá var bara gærdagurinn ansi strembinn líka. Ég fór í brúðarkjólaleiðangur fyrir hádegi og var að því til svona 14. Mátaði kjóla í Tveimur Hjörtum og þar var einn sem mér leist ágætlega á. Ekki alveg draumakjóllinn, en ansi nálægt því. Svo kíkti ég aðeins í Prinsessuna, og þar var kjóll sem var mjög líkur draumakjólnum mínum, en það er bara svo öðruvísi efni og þéttleiki í þessum brúðarkjólum, heldur en svona “venjulegum” samkvæmiskjólum. Brúðarkjólarnir sitja mikið betur og halda löguninni mun betur og lengur. Kíkti svo aðeins í kaffi til vinkonu minnar og fór svo heim.
Yngri stelpan fór í fimleika kl 17 í gær og ég skutlaði henni og fór síðan klukkutíma síðar með eldri stelpunni á bekkjarkvöld, sem var bara mjög gaman. En þegar ég kem heim þá segir kærastinn mér að þegar hann sótti Örnu á fimleikaæfingu þá kom ansi alvarlegt atvik upp á. Ungur drengur féll úr köðlunum og missti meðvitund og fór í öndunarstopp eða hjartastopp… ja eða bæði. Fyrst var haldið að þetta væri slys, en síðar kom í ljós að drengurinn hafði fengið heilablæðingu og líklega var það þess vegna sem hann datt. Hann liggur nú þungt haldinn á gjörgæsludeild og óvíst með framhaldið
Ég fór með Örnu, og reyndar Hjalta líka, því hann var þarna á staðnum þegar þetta gerðist, á svona samkomustund í Gerplu áðan. Þar spjallaði prestur aðeins við okkur og beindi sérstaklega orðum til krakkanna. Þetta er bara rosalega sorglegt og maður hugsar mikið til þessa drengs ásamt foreldra hans og fjölskyldu.
Ótrúlegt en satt, þá dreif ég mig í ræktina eftir bekkjarkvöldið í gær, en í kvöld bara hafði ég ekki orku. Er síðan að vinna alla helgina, en vöktunum mínum var breytt þannig að ég ætti að komast í ræktina allavegana á sunnudeginum… kannski á laugardeginum líka.
Mataræðið hefur verið mjög fínt og ég hef laumast á vigtina aðeins og er bara sátt við það sem ég sé.
Vona að þið hafið það allar (öll) gott. Ég finn svo mikið fyrir því á svona stundum hvað maður er ótrúlega heppinn að eiga heilbrigð börn sem eru bara lúrandi inni í rúmi, eða að dunda sér fyrir framan tölvuna.
1 ummæli |
Brúðkaupspælingar, Átaksfréttir, Ýmislegt |
Permalink
Búría skrifaði
4 mars, 2008
Náði að dorma í tvo tíma áður en ég rauk í brúðarkjólamátun hjá brúðarkjólaleigu Dóru. Það var eins og ég hélt, ekki mikið úrval af þeim stíl sem ég er að leita að. Var eiginlega frekar svekkt. Hún setti svo upp fyrir mig hvað það myndi kosta að sauma draumakjólinn minn og það er alveg um 85 þúsund kall. Kostar náttúrulega alveg 40-60 þúsund að leigja, svo það er alveg spurning hvað maður gerir. Ég á náttúrulega eftir að fara á fleiri leigur og svo athuga með saumastofur. Ef þið vitið um einhverja góða saumastofu, eða bara góða saumakonu sem væri til í að taka svona að sér, þá endilega bendið mér á. Ég alveg teiknaði upp kjólinn þegar ég kom heim svo nú er ég með það á blaði nánast nákvæmlega eins og ég vil hafa hann.
En mikið andskoti eru þessir brúðarkjólar annars klæðilegir og gera mann flottan ;D Maður verður alveg þvílíkt slim slim og sexí
Reyndar þá var vigtin mun skemmtilegri við mig í dag, greinilega runnið ágætlega af mér. En ég ætla bara að setja inn tölu á morgun, þar sem dagurinn í dag er búinn að vera svo asnalegur upp á svefn og matmálstíma svo ég hef ekkert almennilegt viðmið.
Ætla að drífa mig í ræktina.
3 Ummæli |
Brúðkaupspælingar, Átaksfréttir |
Permalink
Búría skrifaði
2 mars, 2008
Þá er helgarsukkið búið. Drakk marga, marga bjóra í gær. Reyndar bara Lite bjór. Borðaði góðan mat, hafði bara tortillur með nautakjötsstrimlum, salsasósu o.s.frv. Rosa gott. Dagurinn í dag var svolítið þreyttur og líka þessi týpíski nartdagur eftir fyllerí. Engin regla á neinu, bara nartað í afganga frá í gær, auk þess sem nokkrir súkkulaðikonfektmolar fengu að fljóta með :S Jaja, það verður bara að koma í ljós hvaða áhrif þetta hefur á vigtina. Það var samt rosa gaman í gær
Í dag fórum ég og framtíðareiginmaðurinn á brúðkaupssýninguna í Garðheimum. Brúðarkjólaleiga Dóru og Tvö Hjörtu voru með sýningar á brúðarkjólum… verð nú að segja að ég sá ekki minn draumakjól. Finnst allir kjólarnir voða keimlíkir og lítil fjölbreytni. Þó aðeins meiri fjölbreytni hjá Brúðarkjólaleigu Dóru, sá kjóla þar sem voru kannski aðeins í áttina að því sem ég hef í huga. En mér fannst rosalega áberandi allir þessir hlýralausu kjólar. Mér finnst þannig snið bara alls ekkert fallegt. Það eru fáar konur sem bera þetta snið þannig að vel fari. Var orðin svolítið leið á að horfa á kjól eftir kjól sem voru nánast alveg eins. En auðvitað er úrvalið meira í sjálfum verlsununum og ég hlakka nú mikið til að fara að máta og skoða á þriðjudaginn og miðvikudaginn
Jæja, best að fara að sækja frumburðinn til vinkonu sinnar. Og koma yngri ormunum í bólið.
2 Ummæli |
Brúðkaupspælingar, Átaksfréttir |
Permalink
Búría skrifaði