Garg

13 febrúar, 2008

Bloggdrasl!!!


Hvar er www.hot.is?

13 febrúar, 2008

Veit einhver hvað varð um síðuna? Ég er svo vön að skrá mataræðið mitt þar og nú veit ég ekkert hvað ég á að gera :S Held samt að dagurinn í dag hafi verið fínn matarlega séð. Drekk Oolong teið mitt, svona 2-3 bolla á dag og líkar bara vel. Veit svo sem ekkert hvort þetta gerir neitt, nema það dregur eflaust eitthvað úr Pepsi max drykkjunni.

Fór ekki í ræktina í dag, enda var ég á næturvakt síðustu nótt og fór svo að vinna aftur frá 16-20 í dag. Nenni bara ekki að fara í ræktina þá, of þreytt. Þurfti líka að fara í foreldraviðtal um kl. 14, svo ég svaf nú ekki lengi eftir næturvaktina. En ég ætti nú að geta farið á morgun. Leist bara ágætlega á World Class í Turninum, nema að þetta er nú ekki alveg tilbúið. Það á eftir að tengja sjónvarpið og útvarpið í tækin, enginn vaskur kominn til að fylla á brúsana, og ekki fann ég nein lítil handklæði. En þetta er annars mjög snyrtilegt og fín og ný tæki. Líst vel á að geta farið þarna og þurfa ekki alltaf að bruna niður í Laugar.

Jæja, so far so good. Hugsa stíft um brúðarkjólinn sem mig langar að vera í ;)


Oolong átak

12 febrúar, 2008

Jæja, þurfti að gera eitthvað til að bústa mig upp. Svona eins og Heiða og brennslutöflurnar ;) En allavegana ætla ég að prófa þetta Oolong te og auðvitað vera dugleg í ræktinni og mataræðinu, og sjá hvort þetta fína te hjálpi mér. Það á víst að auka brennslu og gera mann orkumeiri og draga úr sætindaþörf. Sakar ekki að prófa.

Nú ætla ég að drífa mig í ræktina og prófa nýju World Class stöðina í Turninum í Kópavogi ;) Það verður spennandi ;)


Hvers vegna á ég að borða hollt, hreyfa mig og létta mig?

11 febrúar, 2008

Jæja Dídí, here goes:

Kostir við hollustuna:

Líður mun betur þegar ég borða rétt og stunda reglulega hreyfingu, bæði líkamlega og andlega.

Þolið batnar og almennt líkamlegt ástand.

Er minna þreytt og hef meiri orku.

Lít betur út og er ánægðari með mig, aukið sjálfstraust.

Get keypt mér föt í hvaða fataverslun sem er og þau passa.

Verð æðisleg í brúðarkjólnum á brúðkaupsdaginn.

Gallar við hollustuna:

Tekur á viljastyrkinn.

Ömm…

Kostir við að vera bara í óhollustunni:

Þarf ekki að reyna á viljastyrkinn.

Skammtímafullnæging þegar ég borða eitthvað djúsí eða sætt.

Gallar við að vera bara í óhollustunni:

Allt öfugt við kostina við að vera í hollustunni… líður verr, minni orka, minna sjálfstraust, óánægð með mig o.s.frv., o.s.frv.

Auðvitað er þetta ekki spurning hvað maður á að velja… veit það alveg!!! Maður þarf bara stanslaust að minna sig á þetta.

Hins vegar er allt í lagi að leyfa sér aðeins að slaka á einstaka sinnum, en þetta “einstaka sinnum” er líka lykilatriðið.


Helvítis jójó :S

11 febrúar, 2008

Andskotinn hvað þetta gengur eitthvað illa núna. Nokkrir góðir dagar og svo nokkrir slæmir. Helgin var versta sukkhelgi ever, þó svo að dagurinn í dag hafi verið svona sæmilegur. Ég er búin að vera að vinna helling, tók aukavaktir um helgina, og er að taka næturvaktir núna í nótt og næstu nótt. Vigtin… bleah… er að sveiflast alveg á milli 87 og 90. Getur munað 3 kg á einum frá morgni til næsta :S Þoli ekki hvað ég get sveiflast mikið.

Viljið vinsamlegast sparka í rassinn á mér og segja mér að drulla mér til að gera þetta almennilega?


Oh crappy day!

6 febrúar, 2008

Voða tættur og ruglaður. Var að hjálpa mömmu að þrífa íbúðina sem hún og pabbi eru að selja, og lenti í bakaríisveislu og át m.a. snúða og kleinuhringi :S Ekki fór ég í ræktina heldur eing og ég ætlaði, en ég var að þvo íþróttafötin mín og gleymdi að hengja þau upp. Og reyndar þá er ég eiginlega voða fegin að hafa þessa afsökun, því ég efast um að ég hefði nennt að fara þó svo ég ætti hrein og þurr föt. Er voðalega þreytt og asnaleg. Hef ekki farið í ræktina síðan á laugardaginn. Á sunnudaginn var ég með afmælið og svo á mánudaginn var ég að vinna og svo aftur á næturvakt, og í gær svaf ég svo lítið eftir næturvaktina að ég meikaði ekki ræktina… kannski er ég þess vegna svona þreytt ennþá í dag.

En ég hef þá bara daginn á morgun góðan, og hinn ;)

——————————————————————————————–

Jæja, smá breyting. Drullaðist í ræktina þrátt fyrir allt. Gróf fram einhver íþróttaföt úr ósamanbrotnu fatahrúgunni minni og dreid mig af stað. Tók 60 mín á CrossTrainernum og svo magaæfingar. Er aðeins sáttari við daginn núna.


Vigtun

5 febrúar, 2008

Jæja, þrátt fyrir veisluátið á sunnudaginn þá er ég kílói léttari í dag en síðasta þriðjudag. Held ég verði bara að vera sátt við það, þó svo að sukkkílóin hafi nú oftast runnið aðeins hraðar af mér fyrstu vikuna. En þessi vika var líka ekki alveg 100%, svo ég er bara mjög ánægð. Þetta líka hvetur mann svo til að halda áfram.

Í gær eldaði ég mjög góðar fiskibollur. Studdist við einhverja uppskrift sem ég fann á netinu, en í henni voru fyrir utan fiskihakkið, egg, AB mjólk, hveiti (sem ég breytti í spelt), laukur, hvítlaukur, krydd og svo rifnar gulrætur :D Þær voru bara æðislegar. Gerði svo bara kalda AB mjólkursósu með – bara AB mjólk, smá sætt sinnep og krydd. Kryddið sem ég notaði var timian, steinselja og hvítlauksduft. Og jú, smá salt og pipar. Meira að segja krakkarnr borðuðu þessar fiskibollur með bestu lyst, og elstu stelpunni fannst sósan æðisleg. Yngri krakkarnir héldu sig við tómatsósuna… enda er það náttúrulega bara EINA sósan sem hægt er að borða með fiski, sama í hvaða formi hann er.

Jæja, ætla út í búð og gá hvort ég finni eitthvað saltkjöt og tilbúna baunasúpu :Þ


Afmælisbolluveisla

3 febrúar, 2008

Þó ég sé búin að vera dugleg s.l. daga, þá var ég það ekki í dag. Ég var með afmæliskaffi fyrir fjölskylduna, þar sem báðar stelpurnar mínar áttu afmæli í janúar, og ég var ekkert búin að bjóða ömmum og öfum og frænkum og frændum og svona. Þar sem bolludagur er á morgun þá bakaði ég líka bollur. Ég reyndar fékk mér bara eina bollu, en ég fékk mér skúffuköku og svo fékk ég mér slatta af pizzu… reyndar heimabökuð speltpizza. En ég var ekkert að fylgjast með hvað ég var að setja ofan í mig, finn bara að ég er búin að éta aðeins of mikið. Það verður bara að koma í ljós hvernig vigtin verður, á ekki von á miklum léttingi þessa viku vegna þessa. En ég er samt komin í gang, dagurinn á morgun verður örugglega fínn ;)

Sem betur fer þá kláruðust bæði bollurnar, skúffukakan og pizzan, svo það eru engir afgangar hér til að freistast í ;)


I found my way again

1 febrúar, 2008

Já, ég er komin á beinu brautina. Vonandi verða hliðarsporin ekki allt of mörg. En ég er búin að standa mig alveg prýðilega s.l. daga og fór líka í ræktina í gær. Ætlaði eiginlega að fara í hóptíma, en svo bað barnsfaðir minn mig um að líta eftir Örnu á meðan hann færi með Hjalta í handbolta, en hún Arna mín var svolítið lasin í gær. Þannig að Arna kom og var hjá mér og ég fór svo bara í ræktina seinna um kvöldið. Tók 60 mínútur á CrossTrainernum og svo slatta af magaæfingum. Ég þyrfti svo að fara að koma lyftingaprógramminu í gagnið aftur.

Ég hef líka verið að velta fyrir mérað plana bara vikuna fram í tímann, svona matarlega séð. Ekki bara mín vegna, heldur bara fyrir fjölskylduna. Maður er svo oft hugmyndasnauður og með eitthvað svipað í matinn sem maður ákveður á síðustu stundu. En með þessu móti gæti maður passað betur upp á fjölbreytnina og passað t.d. að hafa fisk tvisvar í viku. Mér líst allavegana vel á þetta plan hjá mér ;) Þá er ég nú eiginlega bara að hugsa um kvöldmatinn, þar sem það er aðalfjölskyldumáltíðin. Kannski ég smelli inn planinu þegar það er komið í gagnið ;) Veit allavegana að það verður gúllas í kvöld og heimabökuð speltpizza á morgun ;)