Helgin framundan ;)

Mikið er gott að það er að koma helgi og að ég sé ekki að vinna :D

Í gær þurfti ég að stússast töluvert eftir hádegi, fara í viðtal í skóla elstu stelpunnar og svo aðeins seinna í foreldraviðtal varðandi leikskólastrákinn minn, sem er náttúrulega bara snilli. Tókst að hendast í ræktina þarna á milli. Síðan vorum við búin að bjóða tengdó í kvöldmat, en þau eru í heimsókn hér fyrir sunnan núna í nokkra daga. Ég eldaði kjúklingabringur í kókos-karrýsósu og hafði ofnbakaða kartöflubáta með, ásamt léttsteiktum sveppum og fersku salati. Þetta rann ljúflega niður ;)

Í kvöld erum við boðin í mat til mágs míns, ætla að reyna að fara í ræktina fyrst. Svo þarf ég víst að fara í eitthvað foreldrarölt seinna í kvöld.  Það ætti að verða áhugavert.

Á morgun ætla ég að reyna að draga frænku mína í heimsókn og helst plata hana á smá djamm. Hún er að fara út og verður úti fram á sumar, þannig að þetta er smá kveðjuhóf… fyrir okkur tvær, hehehe ;) Vonandi hefur hún tíma.

Jæja, ætla að halda áfram að vinna ;)

2 svör to “Helgin framundan ;)”

  1. Glóin segir:

    Dugleg ertu í ræktinni :-) og mataræðinu :-)
    Er ekki allt að gerast í vigtar/ummálsmálum?
    Vona að þú skemmtir þér vel um helgina
    Knús, Glóin

  2. Rakel segir:

    Jummí, girnilegur matur :)
    en með ísinn þá er eflaus ekkert mál að nota skyr og svo undanrennuduftið, það færðu til dæmis í hagkaup, nóatúni og eflaust einhverjum fleiri stöðum, veit að það er í mjólkurkælinum í bæði Hagkaup á Garðatorgi og Nóatúni í Rofabænum, annars hef ég einhverstaðar séð það í hillunni hjá bökunarvörunum.

    Gangi þér vel og góða helgi

Skildu eftir svar