Mikið er gott að það er að koma helgi og að ég sé ekki að vinna
Í gær þurfti ég að stússast töluvert eftir hádegi, fara í viðtal í skóla elstu stelpunnar og svo aðeins seinna í foreldraviðtal varðandi leikskólastrákinn minn, sem er náttúrulega bara snilli. Tókst að hendast í ræktina þarna á milli. Síðan vorum við búin að bjóða tengdó í kvöldmat, en þau eru í heimsókn hér fyrir sunnan núna í nokkra daga. Ég eldaði kjúklingabringur í kókos-karrýsósu og hafði ofnbakaða kartöflubáta með, ásamt léttsteiktum sveppum og fersku salati. Þetta rann ljúflega niður
Í kvöld erum við boðin í mat til mágs míns, ætla að reyna að fara í ræktina fyrst. Svo þarf ég víst að fara í eitthvað foreldrarölt seinna í kvöld. Það ætti að verða áhugavert.
Á morgun ætla ég að reyna að draga frænku mína í heimsókn og helst plata hana á smá djamm. Hún er að fara út og verður úti fram á sumar, þannig að þetta er smá kveðjuhóf… fyrir okkur tvær, hehehe
Vonandi hefur hún tíma.
Jæja, ætla að halda áfram að vinna
Búría skrifaði