Það er góð lýsing á mér núna. Var á næturvakt s.l. nótt og er nývöknuð. Alveg að drepast úr mygli. Öll bjúguð og finn að puttarnir eru stífir og glætan að ég nái trúlofunarhringnum af mér skammarlaust, hehe. Jæja, það lagast
Svo er spurning hvort ég komist í ræktina, jú ég stefni á það. Bíllinn minn er nefninlega í viðgerð og ekkert víst að ég fái hann í dag, en mamma ætlar að vera svo elskuleg að lána mér bílinn sinn, þannig að ég fer bara í kvöld.
Heiða nefndi að við ættum bara að stefna á að komast undir 80 kg
Auðvitað stefni ég á það, en ég verð alltaf að brjóta takmörkin mín aðeins niður til að finnast þau meira framkvæmanleg. Þannig að ég stefni allavegana á að komast undir 85 næst og síðan verður stefnan tekin á undir 80
En vissulega er ég samt alltaf að stefna á 70 kg sko.
Jæja, ætla að skríða undir sæng aftur í svona klukkutíma áður en ég þarf að labba til mömmu að sækja bílinn og skutla frumburðinum í söngskólann
——————————————————————————————————-
Æ, ræktin sett á hold þar til á morgun. Er bara alveg rosalega þreytt eftir alla þessa vinnu og svaf í raun of lítið í dag. Ætla bara að slappa af núna og koma sólarhringnum á rétt ról aftur. Fer bara á morgun og verð svo dugleg um helgina líka
Btw. pantaði mér tíma í brúðarkjólamátun og sérsaumunarpælingar hjá Brúðarkjólaleigu Dóru. Fer á þriðjudagsmorgun… spennó
Búría skrifaði