Stund sannleikans

Jæja, steig á vigtina. 86,9 kg takk fyrir. Mun skárra en 90 talan sem ég sá bregða fyrir í síðustu viku. Svo ég er sátt ;) Nú bara held ég áfram og vonast til að komast fljótlega undir 85 kg.

Í gær fór ég ekki í ræktina. Löng vinnutörn um helgina, svo vann ég í gærdag og fór svo aftur á kvöldvakt. Notaði bara frítímann til að leggja mig. En nú er ég spræk og ætla að drífa mig á eftir ;) Fer svo reyndar aftur á næturvakt í nótt.

Datt í smá súkkulaði um helgina, en festist allavegana ekki í þeim pakka ;) Að öðru leyti hefur mataræðið verið fínt.

4 svör to “Stund sannleikans”

  1. Mjónan segir:

    súkkulaðið er alltof hættulegt… erfitt að standast það! Ég fór og keypti mér sykurlaust súkkulaði og salt lakkrís, þá allavega ef ég dett í það þá er það sykurlaust.
    Gangi þér vel áfram og til hamingju með -90 töluna hihi

  2. Glóin segir:

    Já, þú verður enga stund að komast undir 85 kg :-)
    Ég hlakka til göngutúrs á sunnudaginn :-)
    Glóin

  3. Heiða segir:

    Nú munar 100 g á okkur. Sting upp á að við hættum þessu 85+ bulli og skellum okkur í sjötíu og eittvhað kíló hið snarasta :p

  4. Gunný Kr. segir:

    æj duglega duglega…

    knús..

Skildu eftir svar