Jæja, steig á vigtina. 86,9 kg takk fyrir. Mun skárra en 90 talan sem ég sá bregða fyrir í síðustu viku. Svo ég er sátt
Nú bara held ég áfram og vonast til að komast fljótlega undir 85 kg.
Í gær fór ég ekki í ræktina. Löng vinnutörn um helgina, svo vann ég í gærdag og fór svo aftur á kvöldvakt. Notaði bara frítímann til að leggja mig. En nú er ég spræk og ætla að drífa mig á eftir
Fer svo reyndar aftur á næturvakt í nótt.
Datt í smá súkkulaði um helgina, en festist allavegana ekki í þeim pakka
Að öðru leyti hefur mataræðið verið fínt.
Búría skrifaði