Vinnuhelgi og næturvaktir

23 febrúar, 2008

Fór ekki í ræktina þarna á fimmtudaginn og fór reyndar ekki í gær heldur. Bara steinrotaðist stuttu eftir að ég kom heim úr vinnunni og svaf til 21. Var að fara á næturvakt og var ekkert að stressa mig á að reyna að ná ræktinni. Svaf svo auðvitað í dag, eftir vaktina, en ætla að drífa mig niður í Laugar núna um kl 18 og taka smá brennslu á Cross Trainernum. Fer síðan aftur á vakt kl 20 og verð til 8 í fyrramálið. Verst að missa af úrslitunum í Laugardagslögunum, en kannski nær maður smá glefsum ef það verður ekki brjálað að gera. Svo gott fólk, haldið ykkur heima og ekki slasa ykkur eða verða veik rétt á meðan keppnin er ;)

Annars er ég bara á góðu róli núna og finn að ég er að grennast aftur. Það er góð tilfinning. Þarf að fara að huga að því að skoða kjóla. Finnst reyndar trúlegast að ég endi með að láta sauma á mig brúðarkjól, en það er örugglega ekkert að því að sjá fyrst aðeins hvað er til. Hefur einhver reynslu af svona brúðarkjólastússi? Hvernig fer þetta fram eiginlega? Nú eru ekki nema um 5 mánuðir í brúðkaupið og maður þarf kannski eitthvað að fara að pæla í þessu :Þ