Þreyttur fimmtudagur

21 febrúar, 2008

Vikuna sem ég er með börnin, þá finnst mér alltaf fimmtudagarnir svolítið erfiðir. Er náttúrulega í fríi á þriðjudögum og miðvikudögum, en á fimmtudögum þarf ég að vera mætt klukkan átta í vinnuna. Fyrst þarf ég að skutla kallinum í vinnuna um kl. 5:30. Svo um klukkutíma síðar þarf að koma krökkum á fætur og gera alla klára. Síðan þarf að koma þeim öllum í skóla ig leikskóla og svo sjálfri mér í vinnuna, þar sem ég er til 16. Þá þarf ég að drífa mig að sækja yngri ormana tvo á leikskólann og í dægradvölina og bruna með þá á handboltaæfingu sem byrjar 16:40. Hún er búin 17:30 og þá kemur maður sér heim og er kominn heim rétt fyrur kl 18. Þá fer maður að elda mat á meðan maður aðstoðar stelpurnar við að læra, aðallega þessa yngri náttúrulega. Síðan er borðað, svo hendir maður ormunum í bað til að skola handboltasvitann af þeim. Þá er nú bara alveg að koma svefntími, maður finnur ný nærföt og hrein náttföt og leyfir þeim svo kannski að dunda sér smá áður en maður kemur þeim í rúmið. Þegar það er búið get ég loksins slappað almennilega af. Það er kannski svona um níuleytið um kvöldið.

Gormarnir eru í baði núna, svo ég er að stela smá tíma í að blogga á meðan.  Hrikalega er ég þreytt í fótunum. Veit ekki hvernig ég væri ef ég hefði ekki keypt mér svona stuðningssokka í apótekinu í dag. Fannst það skynsamlegra fyrir bækluðu löppina mína ;) Ekki séns að ég nenni í ræktina á eftir, ætla bara að fara á morgun. Þá fara krakkarnir til pabba sinna og ég hef ágætis tíma fyrir mig þar til ég mæti á næturvakt á slysó.

Annars eldaði ég voða góðan mat. Gerði kjúklingalundir í appelsínu-engifersósu með möndlum. Hafði speltpasta með þessu og léttsteikta sveppi. Gerði reyndar bara einfalda kjúklingaleggi líka fyrir gikkina.

Það er nú meiri Ítalainnrásin hérna, haha, get ekki annað en hlegið aðeins að þessu.