Hreyfiþörf og pirringur

Ég er bara búin að vera pirruð í dag yfir að komast ekki í ræktina. Var að spá í að fara kannski og lyfta bara efri hluta, en þarf náttúrulega fyrst að hita upp. Fannst svona skynsamlegra að taka því rólega í dag og leyfa fætinum að jafna sig betur og fara þá bara á morgun og lyfta. Er samt mun skárri í dag en ég var í gærkvöldi.

Mataræðið hefur verið mjög fínt, bæði í gær og í dag. Í gær eldaði ég kjúklingabringur, með dyggri aðstoð unnustans sem ég lét sækja allt fyrir mig… stóð bara á sama stað, hahaha. En já, þetta voru sem sagt kjúllabringur mallaðar í kókos-karrýsósu. Alveg svakalega gott. Vissi ekki að ég gæri búið til svona, haha. Æ jú, ég er alltaf að fikta eitthvað og prófa. Þetta var allavegana mjög fínt. Notaði létta kókosmjólk í dós, tsk. af karrí, ca 100 gr. kotasælu (hefði eflaust mátt sleppa henni, kókosmjólkin er svo kremuð sjálf) og svona 2 mini hvítlauka. Já og reyndar var ég líka með smá kjúklingakrydd.

Byrjaði á að marinera bringurnar í kokosolíu (hafði skálina í volgu vatnsbaði til að hún héldist fljótandi) ásamt hvítlauknum (röspuðum), kryddinu og 1/3 af kókosmjólkinni. Svo steikti ég bringurnar á pönnu og hellti svo restinni af kókosmjólkinni yfir, ásamt kotasælunni og kryddaði svo bara meira eftir smekk.

Þetta bar ég fram með léttsteiktu Wok grænmeti og villihrísgrjónablöndu.

Í dag var mataræðið svona:

Morgunmatur
40 gr Special K
200 gr létt AB mjólk
1/2 banani í bitum
60 gr fersk jarðarber, niðurskorin
smá sætuefni

Hádegismatur
Afgangurinn frá í gær;
ca 100 gr kjúklingabringa
ca 1 dl kóks-karrýsósa
ca 75 gr villihrísgrjónablanda
ca 150 gr Wok grænmeti

Millibiti
1 stk Protein Blast m. bananabragði

Kaffitími
1 stk Polarkraft Extrem
Álegg:
10 gr L&L
20 gr reyktur silungur
1/2 banani í sneiðum

Kvöldmatur
ca 150 gr heimalöguð kjötsósa
ca 100 gr speltspaghettí
1 stkheilhveitibrauðsneið hitað í ofni m. 5 gr smj0ri, 15 gr 17% osti og hvítlaukskryddi.

Kvöldsnarl
Óákveðið enn

Svo drekk ég Oolong te ca 2-3 bolla á dag, og fæ mér nú líka Pepsi Max. Hafði samt bara vatn með matnum.

En já maturinn. Mér finnst þessi sósa sem ég geri alveg rosa góð. Hér er ca uppskriftin:

500 gr nautahakk
150 gr sveppir, niðurskornir
1/2 stór rauðlaukur, eða 1 lítill, smátt skorinn
2 mini hvítlaukar, eða 3-4 hvítlauksrif, raspaðir
2 dósir tómatkraftur
100 gr kotasæla
vatn til að þynna, ca 3-5 dl
Ítölsk kryddblanda
smá olía til steikingar

Hakk steikt á pönnu og tekið til hliðar
Laukur, hvítlaukur og sveppir steiktir á pönnu og hakkið sett út í.
Tómatkrafti bætt við og síðan vatni. Set yfirleitt vatn í tómatkraftsdósirnar og hræri vel í til að ná restinni úr dósunum. Set  ca 3-4 slíkar dósir af vatni. Síðan er kotasælunni smellt út í og hrært vel í og látið malla. Kryddað eftir smekk, e.t.v. smá kjötkraftur settur út í líka.

Mér finnst þetta allavegana ein besta kjötsósa sem ég fæ ;)

En þetta dæmi á www.polarpersonaltrainer.com er snilld. Þar er hægt að færa inn æfingarnar sem maður gerir, plana æfingar, setja inn þyngd, meðalpúls, hvíldarpúls o.fl. og þannig fylgjast með hvernig maður bætir sig. Já, þetta er alveg rosalega sniðugt :D

10 svör to “Hreyfiþörf og pirringur”

  1. MjónaN segir:

    Þú ert voða dugleg að prófa þig áfram í eldhúsinu, þarf alveg að taka þig til fyrirmyndar. Alltaf með eins hehe
    Þarf að tékka á þessari polar síðu, frábært að gera fylgst með árangrinum svona.
    Gangi þér vel og láttu þér batna:)

  2. Dídí segir:

    Haha týpískt, maður kemst ekki í ræktina og þá auðvitað langar mann meira en allt. ;)

  3. Glóin segir:

    Mmmm… þarf að prufa kjúllann :-) Er algjör sökker fyrir kjúkling, og finnst kókosmjólk best af öllu. Hvernig fór þetta í krakkana?
    En fyndið samt, kjötsósan þín er eiginlega alveg eins og mín ;-) Nema ég set líka gulrætur og brokkolí í mína.
    úff, þarf að ná mér í nettengingu heim svo ég geti skoðað púlsmælissíðuna góðu…
    Glóin

  4. Búría segir:

    Heyrðu, kókos-karrýsósan fór bara vel í krakkana. Hjalti er náttúrulega gikkur dauðans, en ég bara veiddi kjúllann upp úr fyrir hann og svo fékk hann tómatsósu. Tómatsósa er sko besta sósa í heimi að hans mati og gengur með öllum mat ;) Örnu og Elísu fannst sósan rosa góð.

    En með kjötsósuna… gæti alveg sett meira grænmeti í hana, en þá rynni hún ekki niður í krakkana, allavegana ekki Hjalta. Sveppirnir eru nógu slæmir sko, hann veiðir þá úr, hehe. Laukurinn sést þó allavegana ekki.

  5. Chit segir:

    Ciao EsterEster,
    sono un blogger italiano e arrivo nel tuo blog per un gioco che mi chiede di venire a trovare tre blogger islandesi, sperando che poi voi facciate lo stesso. Ho capito (credo) che questa è una ricetta e siccome conoscere nuovi piatti non è mai sbagliato mi sono permesso di scriverti. Non so se mi risponderai ma … io ci provo. Per ora ti auguro una buona serata e spero di rileggerti presto.
    Claudio

    EsterEster Hello, I am an Italian blogger and arrival in your blog for a game that asks me to come and find three Icelandic blogger, then you hoping that the same facades. I understand (I believe) that this is a recipe and know as new dishes is never wrong, I took the liberty to write. I do not know if I am answering but … I will try. For now we hope a good evening and I hope to rileggerti soon.
    Claudio

  6. Búría segir:

    Skrýtnir þessir Ítalar ;)

  7. Chit segir:

    Ho sbagliato nome, scusa, exscuse me!
    Sono un blogger stordito, come posso fare per scusarmi?

    [translation]
    I have the wrong name, excuse, exscuse me!
    I am a blogger stunned, as I do apologize for?

  8. bakunin1269 segir:

    hvernig þú kalla tre þrír bróðursonur af gefa önd

  9. Lorenzo segir:

    Hello!

    I’m a passenger who arrived here from Italy. A friend invited me for a virtual trip in Island and I found your blog. As you can understand, I don’t know any word of your language… in your blog there aren’t images or video… so I don’t understand nothing of you and nothing about the argument you wrote in the posts! :)

    So, why am I here? Because I saw your face and I saw your eyes, wonderful eyes and I think to write you and leave a simply comment…

    Good life, a kiss… God bless you! :)

    Bye bye from Italy…

  10. Giorgia segir:

    Lorenzo, il messaggio dovevi lasciarglielo in italiano, in inglese non vale!!! :D

Skildu eftir svar