Hreyfiþörf og pirringur

19 febrúar, 2008

Ég er bara búin að vera pirruð í dag yfir að komast ekki í ræktina. Var að spá í að fara kannski og lyfta bara efri hluta, en þarf náttúrulega fyrst að hita upp. Fannst svona skynsamlegra að taka því rólega í dag og leyfa fætinum að jafna sig betur og fara þá bara á morgun og lyfta. Er samt mun skárri í dag en ég var í gærkvöldi.

Mataræðið hefur verið mjög fínt, bæði í gær og í dag. Í gær eldaði ég kjúklingabringur, með dyggri aðstoð unnustans sem ég lét sækja allt fyrir mig… stóð bara á sama stað, hahaha. En já, þetta voru sem sagt kjúllabringur mallaðar í kókos-karrýsósu. Alveg svakalega gott. Vissi ekki að ég gæri búið til svona, haha. Æ jú, ég er alltaf að fikta eitthvað og prófa. Þetta var allavegana mjög fínt. Notaði létta kókosmjólk í dós, tsk. af karrí, ca 100 gr. kotasælu (hefði eflaust mátt sleppa henni, kókosmjólkin er svo kremuð sjálf) og svona 2 mini hvítlauka. Já og reyndar var ég líka með smá kjúklingakrydd.

Byrjaði á að marinera bringurnar í kokosolíu (hafði skálina í volgu vatnsbaði til að hún héldist fljótandi) ásamt hvítlauknum (röspuðum), kryddinu og 1/3 af kókosmjólkinni. Svo steikti ég bringurnar á pönnu og hellti svo restinni af kókosmjólkinni yfir, ásamt kotasælunni og kryddaði svo bara meira eftir smekk.

Þetta bar ég fram með léttsteiktu Wok grænmeti og villihrísgrjónablöndu.

Í dag var mataræðið svona:

Morgunmatur
40 gr Special K
200 gr létt AB mjólk
1/2 banani í bitum
60 gr fersk jarðarber, niðurskorin
smá sætuefni

Hádegismatur
Afgangurinn frá í gær;
ca 100 gr kjúklingabringa
ca 1 dl kóks-karrýsósa
ca 75 gr villihrísgrjónablanda
ca 150 gr Wok grænmeti

Millibiti
1 stk Protein Blast m. bananabragði

Kaffitími
1 stk Polarkraft Extrem
Álegg:
10 gr L&L
20 gr reyktur silungur
1/2 banani í sneiðum

Kvöldmatur
ca 150 gr heimalöguð kjötsósa
ca 100 gr speltspaghettí
1 stkheilhveitibrauðsneið hitað í ofni m. 5 gr smj0ri, 15 gr 17% osti og hvítlaukskryddi.

Kvöldsnarl
Óákveðið enn

Svo drekk ég Oolong te ca 2-3 bolla á dag, og fæ mér nú líka Pepsi Max. Hafði samt bara vatn með matnum.

En já maturinn. Mér finnst þessi sósa sem ég geri alveg rosa góð. Hér er ca uppskriftin:

500 gr nautahakk
150 gr sveppir, niðurskornir
1/2 stór rauðlaukur, eða 1 lítill, smátt skorinn
2 mini hvítlaukar, eða 3-4 hvítlauksrif, raspaðir
2 dósir tómatkraftur
100 gr kotasæla
vatn til að þynna, ca 3-5 dl
Ítölsk kryddblanda
smá olía til steikingar

Hakk steikt á pönnu og tekið til hliðar
Laukur, hvítlaukur og sveppir steiktir á pönnu og hakkið sett út í.
Tómatkrafti bætt við og síðan vatni. Set yfirleitt vatn í tómatkraftsdósirnar og hræri vel í til að ná restinni úr dósunum. Set  ca 3-4 slíkar dósir af vatni. Síðan er kotasælunni smellt út í og hrært vel í og látið malla. Kryddað eftir smekk, e.t.v. smá kjötkraftur settur út í líka.

Mér finnst þetta allavegana ein besta kjötsósa sem ég fæ ;)

En þetta dæmi á www.polarpersonaltrainer.com er snilld. Þar er hægt að færa inn æfingarnar sem maður gerir, plana æfingar, setja inn þyngd, meðalpúls, hvíldarpúls o.fl. og þannig fylgjast með hvernig maður bætir sig. Já, þetta er alveg rosalega sniðugt :D