Voða sniðug, dreif mig í pallatíma kl. 17:30 í Laugum. Langt síðan ég hef farið, en mér hefur alltaf fundist voða gaman í pallatímum. Eniveis, ekkert allt of flókin spor, en ansi hröð, svo ég var svona pínu út úr kú á köflum. Nema þegar tíminn er rúmlega hálfnaður þá tekst mér að stíga svona asnalega niður að ég misstíg mig svona skemmtilega og var bara draghölt á eftir. Kældi þetta strax og druslaðist svo bara heim. Og hér ligg ég í Lay-Z-Boy, með hátt undir fótum, búin að taka verkjatöflur og vil helst ekki þurfa að hreyfa mig. Snillingur, eða þannig. Jebb, drottning ræktarinnar í dag. Efast um að ég þjösnist mikið í ræktinni næstu daga… andskotinn!!!
19 febrúar, 2008 klukkan 5:59 am |
Æj nei! Þetta er nátturulega bara ömurlegt þegar svona gerist og maður er í fullu fjöri fyrir ræktina. Vonandi jafnaru þig sem fyrst;)
19 febrúar, 2008 klukkan 12:15 pm |
Töluð orð verða ekki aftur tekin.
Ciò che è stato detto non può essere ritrattato. (italiano!)
ciao
Alex
20 febrúar, 2008 klukkan 12:45 pm |
Heheh æjæjæj. Þeir eru náttúrulega stórhættulegir þessir pallatímar :p