Ekki var hún nú neitt glæsileg svona átakslega séð. Ég reyndar keypti mér Polar F11 púlsmæli á föstudaginn og fór svo auðvitað í ræktina að prófa hann. Ákvað að fara eftir þessum æfingapúlsi og mér fannst ég ekkert vera að taka á að ráði. En ég ætla samt að prófa að fara eftir þessu núna. Eins og vinkona mín, sem er einkaþjálfari, útskýrði svo vel, að til að brenna fitu þarf náttúrulega súrefni og ef maður er að púla svo mikið að maður sé mjög móður, þá er líkaminn ekki að fá nægilega mikið af súrefni. Svo reyndar sá ég að það munar ekki svo svakalega á kaloríumagninu sem maður er að brenna þegar maður tekur þetta svona á meðalpúlsi og þegar maður er að púla eins og vitleysingur. Það munaði um 100 hitaeiningum. En allavegana er ég mjög hrifin af þessum púlsmæli
Held að það sé mikið rétt að hann hvetji mann áfram.
En síðan matarlega séð… eh…
Fór í afmæli á föstudagsvköldið og datt hressilega í það, sem var svo sem ekkert alvarlegt. En hins vegar var ég í þynnkusukkinu í gær. Tókst að vísu að halda mér frá sælgætinu, en stóðst ekki mátið, eftir baráttu allan daginn, og keypti mér nachos og salsaídýfu um kvöldið. Finn líka vel hvað ég er þyngri og með sukkið utan á mér í dag. En þá er bara að byrja aftur og vera dugleg í dag og næstu daga… og vikur. Nú er reyndar ekkert djamm planað á næstunni og best að reyna að halda því bara þannig. Ef ég ætla að losna við einhver kíló fyrir páska þá veitir ekki af aðhaldinu. Sé ekki fram á að ná 80 kg fyrir þennan tíma, yrði eiginlega bara ánægð ef ég kemst aftur í 85.
Veit reyndar ekki hvort ég hef tíma til að fara í ræktina í dag, en ég ætla að reyna.
—————————————————————————————————
Jæja, smá öppdeit. Dreif mig í ræktina og tók smá brennslu/upphitun í 30 mín á CrossTrainernum, og tók síðan bak og biceps vöðva. Fyndið hvað það er skemmtilegra í ræktinni þegar maður er með svona græjur. Nú er maður sko með iPod OG púlsmæli, hehehe.
En svo bakaði yngri dóttir mín súkkulaðibitakökur áðan (með smá aðstoð móður sinnar) og það var nú ekki annað hægt en að smakka afraksturinn hjá meistarabakaranum :Þ
Búría skrifaði