Var búin að blogga, en færslan hvarf. Hef ekki lent í þessu áður hér á wordpress.
En allavegana þá hef ég ekki getað skráð kaloríurnar, þar sem hot.is liggur niðri og ég veit bara ekkert hvað hefur komið fyrir síðuna
Eins og ég nota hana mikið. Vonandi kemst hún í lag aftur.
Annars held ég að mataræðið hafi verið fínt í dag. Fór að vísu ekki í ræktina, enda bara hundþreytt. Var á næturvakt s.l. nótt, vaknaði fljótlega eftir hádegið til að fara í foreldraviðtal, og svo fór ég að vinna aftur frá 16-20. Bara nennti ekki í ræktina þegar ég var búin. En ég stefni alldeilis á að fara á morgun.
Annars leist mér bara vel á World Class í Turninum, nema að aðstaðan er ekki alveg tilbúin. Það er ekki búið að tengja sjónvarp og útvarp í tækin og eins var enginn vaskur til að fylla á brúsana sína. Svo fann ég heldur engin lítil handklæði. En mér skilst að það eigi nú að bæta úr þessu fljótlega. En tækin eru fín, útsýnið geggjað og allt mjög snyrtilegt og fínt. Líst rosa vel á að geta skroppið í Turninn frekar en að þurfa alltaf að keyra niður í Laugar.
En já, so far so good. Drekk mitt Oolong te og finnst það bara fínt, hvað sem það svo gerir fyrir mig. Drekk kannski aðeins minna Pepsi max fyrir vikið
Svo hugsa ég bara stíft um brúðarkjólinn sem mig langar að vera í
Búría skrifaði
Búría skrifaði
Búría skrifaði