Jæja Dídí, here goes:
Kostir við hollustuna:
Líður mun betur þegar ég borða rétt og stunda reglulega hreyfingu, bæði líkamlega og andlega.
Þolið batnar og almennt líkamlegt ástand.
Er minna þreytt og hef meiri orku.
Lít betur út og er ánægðari með mig, aukið sjálfstraust.
Get keypt mér föt í hvaða fataverslun sem er og þau passa.
Verð æðisleg í brúðarkjólnum á brúðkaupsdaginn.
Gallar við hollustuna:
Tekur á viljastyrkinn.
Ömm…
Kostir við að vera bara í óhollustunni:
Þarf ekki að reyna á viljastyrkinn.
Skammtímafullnæging þegar ég borða eitthvað djúsí eða sætt.
Gallar við að vera bara í óhollustunni:
Allt öfugt við kostina við að vera í hollustunni… líður verr, minni orka, minna sjálfstraust, óánægð með mig o.s.frv., o.s.frv.
Auðvitað er þetta ekki spurning hvað maður á að velja… veit það alveg!!! Maður þarf bara stanslaust að minna sig á þetta.
Hins vegar er allt í lagi að leyfa sér aðeins að slaka á einstaka sinnum, en þetta “einstaka sinnum” er líka lykilatriðið.
11 febrúar, 2008 klukkan 11:54 pm |
Já, við vitum þetta allar, en stundum þurfum við bara að minna okkur á það.
Svo er líka um að gera að slappa af einstaka sinnum, held að það sé alveg krúsjal ef maður ætlar að endast eitthvað.
Allavega fyrir mig!
En gangi þér vel skvísa!
12 febrúar, 2008 klukkan 8:29 am |
Æ þetta er flókið líf það er satt en þú ert nú soddan snilli að þú finnur út úr því. gangi þér allt í haginn.
12 febrúar, 2008 klukkan 12:59 pm |
Flottur listi hjá þér. Haltu fast í þetta með brúðarkjólinn því þú átt eftir að hafa þá mynd uppi það sem eftir er og ekki bara þú sem sérð hana, heldur allir sem koma í heimsókn til þín, foreldra þinna og tengdarforeldra.
Alltaf gott að líta vel út á þannig myndum
12 febrúar, 2008 klukkan 1:09 pm |
Vel mælt! Lykilorðið er einmitt einstaka sinnum en ekki alltaf.
Gangi þér vel skvís….
12 febrúar, 2008 klukkan 7:54 pm |
Já…. Sá sem sagði að það væri einfalt að grenna sig sagði aldrei að það væri auðvelt
Bara halda áfram… þetta kemur