Hvers vegna á ég að borða hollt, hreyfa mig og létta mig?

11 febrúar, 2008

Jæja Dídí, here goes:

Kostir við hollustuna:

Líður mun betur þegar ég borða rétt og stunda reglulega hreyfingu, bæði líkamlega og andlega.

Þolið batnar og almennt líkamlegt ástand.

Er minna þreytt og hef meiri orku.

Lít betur út og er ánægðari með mig, aukið sjálfstraust.

Get keypt mér föt í hvaða fataverslun sem er og þau passa.

Verð æðisleg í brúðarkjólnum á brúðkaupsdaginn.

Gallar við hollustuna:

Tekur á viljastyrkinn.

Ömm…

Kostir við að vera bara í óhollustunni:

Þarf ekki að reyna á viljastyrkinn.

Skammtímafullnæging þegar ég borða eitthvað djúsí eða sætt.

Gallar við að vera bara í óhollustunni:

Allt öfugt við kostina við að vera í hollustunni… líður verr, minni orka, minna sjálfstraust, óánægð með mig o.s.frv., o.s.frv.

Auðvitað er þetta ekki spurning hvað maður á að velja… veit það alveg!!! Maður þarf bara stanslaust að minna sig á þetta.

Hins vegar er allt í lagi að leyfa sér aðeins að slaka á einstaka sinnum, en þetta “einstaka sinnum” er líka lykilatriðið.


Helvítis jójó :S

11 febrúar, 2008

Andskotinn hvað þetta gengur eitthvað illa núna. Nokkrir góðir dagar og svo nokkrir slæmir. Helgin var versta sukkhelgi ever, þó svo að dagurinn í dag hafi verið svona sæmilegur. Ég er búin að vera að vinna helling, tók aukavaktir um helgina, og er að taka næturvaktir núna í nótt og næstu nótt. Vigtin… bleah… er að sveiflast alveg á milli 87 og 90. Getur munað 3 kg á einum frá morgni til næsta :S Þoli ekki hvað ég get sveiflast mikið.

Viljið vinsamlegast sparka í rassinn á mér og segja mér að drulla mér til að gera þetta almennilega?