Vigtun

5 febrúar, 2008

Jæja, þrátt fyrir veisluátið á sunnudaginn þá er ég kílói léttari í dag en síðasta þriðjudag. Held ég verði bara að vera sátt við það, þó svo að sukkkílóin hafi nú oftast runnið aðeins hraðar af mér fyrstu vikuna. En þessi vika var líka ekki alveg 100%, svo ég er bara mjög ánægð. Þetta líka hvetur mann svo til að halda áfram.

Í gær eldaði ég mjög góðar fiskibollur. Studdist við einhverja uppskrift sem ég fann á netinu, en í henni voru fyrir utan fiskihakkið, egg, AB mjólk, hveiti (sem ég breytti í spelt), laukur, hvítlaukur, krydd og svo rifnar gulrætur :D Þær voru bara æðislegar. Gerði svo bara kalda AB mjólkursósu með – bara AB mjólk, smá sætt sinnep og krydd. Kryddið sem ég notaði var timian, steinselja og hvítlauksduft. Og jú, smá salt og pipar. Meira að segja krakkarnr borðuðu þessar fiskibollur með bestu lyst, og elstu stelpunni fannst sósan æðisleg. Yngri krakkarnir héldu sig við tómatsósuna… enda er það náttúrulega bara EINA sósan sem hægt er að borða með fiski, sama í hvaða formi hann er.

Jæja, ætla út í búð og gá hvort ég finni eitthvað saltkjöt og tilbúna baunasúpu :Þ