Þó ég sé búin að vera dugleg s.l. daga, þá var ég það ekki í dag. Ég var með afmæliskaffi fyrir fjölskylduna, þar sem báðar stelpurnar mínar áttu afmæli í janúar, og ég var ekkert búin að bjóða ömmum og öfum og frænkum og frændum og svona. Þar sem bolludagur er á morgun þá bakaði ég líka bollur. Ég reyndar fékk mér bara eina bollu, en ég fékk mér skúffuköku og svo fékk ég mér slatta af pizzu… reyndar heimabökuð speltpizza. En ég var ekkert að fylgjast með hvað ég var að setja ofan í mig, finn bara að ég er búin að éta aðeins of mikið. Það verður bara að koma í ljós hvernig vigtin verður, á ekki von á miklum léttingi þessa viku vegna þessa. En ég er samt komin í gang, dagurinn á morgun verður örugglega fínn
Sem betur fer þá kláruðust bæði bollurnar, skúffukakan og pizzan, svo það eru engir afgangar hér til að freistast í
Búría skrifaði