I found my way again

1 febrúar, 2008

Já, ég er komin á beinu brautina. Vonandi verða hliðarsporin ekki allt of mörg. En ég er búin að standa mig alveg prýðilega s.l. daga og fór líka í ræktina í gær. Ætlaði eiginlega að fara í hóptíma, en svo bað barnsfaðir minn mig um að líta eftir Örnu á meðan hann færi með Hjalta í handbolta, en hún Arna mín var svolítið lasin í gær. Þannig að Arna kom og var hjá mér og ég fór svo bara í ræktina seinna um kvöldið. Tók 60 mínútur á CrossTrainernum og svo slatta af magaæfingum. Ég þyrfti svo að fara að koma lyftingaprógramminu í gagnið aftur.

Ég hef líka verið að velta fyrir mérað plana bara vikuna fram í tímann, svona matarlega séð. Ekki bara mín vegna, heldur bara fyrir fjölskylduna. Maður er svo oft hugmyndasnauður og með eitthvað svipað í matinn sem maður ákveður á síðustu stundu. En með þessu móti gæti maður passað betur upp á fjölbreytnina og passað t.d. að hafa fisk tvisvar í viku. Mér líst allavegana vel á þetta plan hjá mér ;) Þá er ég nú eiginlega bara að hugsa um kvöldmatinn, þar sem það er aðalfjölskyldumáltíðin. Kannski ég smelli inn planinu þegar það er komið í gagnið ;) Veit allavegana að það verður gúllas í kvöld og heimabökuð speltpizza á morgun ;)