Helgin framundan ;)

29 febrúar, 2008

Mikið er gott að það er að koma helgi og að ég sé ekki að vinna :D

Í gær þurfti ég að stússast töluvert eftir hádegi, fara í viðtal í skóla elstu stelpunnar og svo aðeins seinna í foreldraviðtal varðandi leikskólastrákinn minn, sem er náttúrulega bara snilli. Tókst að hendast í ræktina þarna á milli. Síðan vorum við búin að bjóða tengdó í kvöldmat, en þau eru í heimsókn hér fyrir sunnan núna í nokkra daga. Ég eldaði kjúklingabringur í kókos-karrýsósu og hafði ofnbakaða kartöflubáta með, ásamt léttsteiktum sveppum og fersku salati. Þetta rann ljúflega niður ;)

Í kvöld erum við boðin í mat til mágs míns, ætla að reyna að fara í ræktina fyrst. Svo þarf ég víst að fara í eitthvað foreldrarölt seinna í kvöld.  Það ætti að verða áhugavert.

Á morgun ætla ég að reyna að draga frænku mína í heimsókn og helst plata hana á smá djamm. Hún er að fara út og verður úti fram á sumar, þannig að þetta er smá kveðjuhóf… fyrir okkur tvær, hehehe ;) Vonandi hefur hún tíma.

Jæja, ætla að halda áfram að vinna ;)


Mygl!

27 febrúar, 2008

Það er góð lýsing á mér núna. Var á næturvakt s.l. nótt og er nývöknuð. Alveg að drepast úr mygli. Öll bjúguð og finn að puttarnir eru stífir og glætan að ég nái trúlofunarhringnum af mér skammarlaust, hehe. Jæja, það lagast ;) Svo er spurning hvort ég komist í ræktina, jú ég stefni á það. Bíllinn minn er nefninlega í viðgerð og ekkert víst að ég fái hann í dag, en mamma ætlar að vera svo elskuleg að lána mér bílinn sinn, þannig að ég fer bara í kvöld.

Heiða nefndi að við ættum bara að stefna á að komast undir 80 kg ;) Auðvitað stefni ég á það, en ég verð alltaf að brjóta takmörkin mín aðeins niður til að finnast þau meira framkvæmanleg. Þannig að ég stefni allavegana á að komast undir 85 næst og síðan verður stefnan tekin á undir 80 ;) En vissulega er ég samt alltaf að stefna á 70 kg sko.

Jæja, ætla að skríða undir sæng aftur í svona klukkutíma áður en ég þarf að labba til mömmu að sækja bílinn og skutla frumburðinum í söngskólann ;)

——————————————————————————————————-

Æ, ræktin sett á hold þar til á morgun. Er bara alveg rosalega þreytt eftir alla þessa vinnu og svaf í raun of lítið í dag. Ætla bara að slappa af núna og koma sólarhringnum á rétt ról aftur. Fer bara á morgun og verð svo dugleg um helgina líka ;)

Btw. pantaði mér tíma í brúðarkjólamátun og sérsaumunarpælingar hjá Brúðarkjólaleigu Dóru. Fer á þriðjudagsmorgun… spennó :D


Stund sannleikans

26 febrúar, 2008

Jæja, steig á vigtina. 86,9 kg takk fyrir. Mun skárra en 90 talan sem ég sá bregða fyrir í síðustu viku. Svo ég er sátt ;) Nú bara held ég áfram og vonast til að komast fljótlega undir 85 kg.

Í gær fór ég ekki í ræktina. Löng vinnutörn um helgina, svo vann ég í gærdag og fór svo aftur á kvöldvakt. Notaði bara frítímann til að leggja mig. En nú er ég spræk og ætla að drífa mig á eftir ;) Fer svo reyndar aftur á næturvakt í nótt.

Datt í smá súkkulaði um helgina, en festist allavegana ekki í þeim pakka ;) Að öðru leyti hefur mataræðið verið fínt.


Vinnuhelgi og næturvaktir

23 febrúar, 2008

Fór ekki í ræktina þarna á fimmtudaginn og fór reyndar ekki í gær heldur. Bara steinrotaðist stuttu eftir að ég kom heim úr vinnunni og svaf til 21. Var að fara á næturvakt og var ekkert að stressa mig á að reyna að ná ræktinni. Svaf svo auðvitað í dag, eftir vaktina, en ætla að drífa mig niður í Laugar núna um kl 18 og taka smá brennslu á Cross Trainernum. Fer síðan aftur á vakt kl 20 og verð til 8 í fyrramálið. Verst að missa af úrslitunum í Laugardagslögunum, en kannski nær maður smá glefsum ef það verður ekki brjálað að gera. Svo gott fólk, haldið ykkur heima og ekki slasa ykkur eða verða veik rétt á meðan keppnin er ;)

Annars er ég bara á góðu róli núna og finn að ég er að grennast aftur. Það er góð tilfinning. Þarf að fara að huga að því að skoða kjóla. Finnst reyndar trúlegast að ég endi með að láta sauma á mig brúðarkjól, en það er örugglega ekkert að því að sjá fyrst aðeins hvað er til. Hefur einhver reynslu af svona brúðarkjólastússi? Hvernig fer þetta fram eiginlega? Nú eru ekki nema um 5 mánuðir í brúðkaupið og maður þarf kannski eitthvað að fara að pæla í þessu :Þ


Þreyttur fimmtudagur

21 febrúar, 2008

Vikuna sem ég er með börnin, þá finnst mér alltaf fimmtudagarnir svolítið erfiðir. Er náttúrulega í fríi á þriðjudögum og miðvikudögum, en á fimmtudögum þarf ég að vera mætt klukkan átta í vinnuna. Fyrst þarf ég að skutla kallinum í vinnuna um kl. 5:30. Svo um klukkutíma síðar þarf að koma krökkum á fætur og gera alla klára. Síðan þarf að koma þeim öllum í skóla ig leikskóla og svo sjálfri mér í vinnuna, þar sem ég er til 16. Þá þarf ég að drífa mig að sækja yngri ormana tvo á leikskólann og í dægradvölina og bruna með þá á handboltaæfingu sem byrjar 16:40. Hún er búin 17:30 og þá kemur maður sér heim og er kominn heim rétt fyrur kl 18. Þá fer maður að elda mat á meðan maður aðstoðar stelpurnar við að læra, aðallega þessa yngri náttúrulega. Síðan er borðað, svo hendir maður ormunum í bað til að skola handboltasvitann af þeim. Þá er nú bara alveg að koma svefntími, maður finnur ný nærföt og hrein náttföt og leyfir þeim svo kannski að dunda sér smá áður en maður kemur þeim í rúmið. Þegar það er búið get ég loksins slappað almennilega af. Það er kannski svona um níuleytið um kvöldið.

Gormarnir eru í baði núna, svo ég er að stela smá tíma í að blogga á meðan.  Hrikalega er ég þreytt í fótunum. Veit ekki hvernig ég væri ef ég hefði ekki keypt mér svona stuðningssokka í apótekinu í dag. Fannst það skynsamlegra fyrir bækluðu löppina mína ;) Ekki séns að ég nenni í ræktina á eftir, ætla bara að fara á morgun. Þá fara krakkarnir til pabba sinna og ég hef ágætis tíma fyrir mig þar til ég mæti á næturvakt á slysó.

Annars eldaði ég voða góðan mat. Gerði kjúklingalundir í appelsínu-engifersósu með möndlum. Hafði speltpasta með þessu og léttsteikta sveppi. Gerði reyndar bara einfalda kjúklingaleggi líka fyrir gikkina.

Það er nú meiri Ítalainnrásin hérna, haha, get ekki annað en hlegið aðeins að þessu.


Hreyfiþörf og pirringur

19 febrúar, 2008

Ég er bara búin að vera pirruð í dag yfir að komast ekki í ræktina. Var að spá í að fara kannski og lyfta bara efri hluta, en þarf náttúrulega fyrst að hita upp. Fannst svona skynsamlegra að taka því rólega í dag og leyfa fætinum að jafna sig betur og fara þá bara á morgun og lyfta. Er samt mun skárri í dag en ég var í gærkvöldi.

Mataræðið hefur verið mjög fínt, bæði í gær og í dag. Í gær eldaði ég kjúklingabringur, með dyggri aðstoð unnustans sem ég lét sækja allt fyrir mig… stóð bara á sama stað, hahaha. En já, þetta voru sem sagt kjúllabringur mallaðar í kókos-karrýsósu. Alveg svakalega gott. Vissi ekki að ég gæri búið til svona, haha. Æ jú, ég er alltaf að fikta eitthvað og prófa. Þetta var allavegana mjög fínt. Notaði létta kókosmjólk í dós, tsk. af karrí, ca 100 gr. kotasælu (hefði eflaust mátt sleppa henni, kókosmjólkin er svo kremuð sjálf) og svona 2 mini hvítlauka. Já og reyndar var ég líka með smá kjúklingakrydd.

Byrjaði á að marinera bringurnar í kokosolíu (hafði skálina í volgu vatnsbaði til að hún héldist fljótandi) ásamt hvítlauknum (röspuðum), kryddinu og 1/3 af kókosmjólkinni. Svo steikti ég bringurnar á pönnu og hellti svo restinni af kókosmjólkinni yfir, ásamt kotasælunni og kryddaði svo bara meira eftir smekk.

Þetta bar ég fram með léttsteiktu Wok grænmeti og villihrísgrjónablöndu.

Í dag var mataræðið svona:

Morgunmatur
40 gr Special K
200 gr létt AB mjólk
1/2 banani í bitum
60 gr fersk jarðarber, niðurskorin
smá sætuefni

Hádegismatur
Afgangurinn frá í gær;
ca 100 gr kjúklingabringa
ca 1 dl kóks-karrýsósa
ca 75 gr villihrísgrjónablanda
ca 150 gr Wok grænmeti

Millibiti
1 stk Protein Blast m. bananabragði

Kaffitími
1 stk Polarkraft Extrem
Álegg:
10 gr L&L
20 gr reyktur silungur
1/2 banani í sneiðum

Kvöldmatur
ca 150 gr heimalöguð kjötsósa
ca 100 gr speltspaghettí
1 stkheilhveitibrauðsneið hitað í ofni m. 5 gr smj0ri, 15 gr 17% osti og hvítlaukskryddi.

Kvöldsnarl
Óákveðið enn

Svo drekk ég Oolong te ca 2-3 bolla á dag, og fæ mér nú líka Pepsi Max. Hafði samt bara vatn með matnum.

En já maturinn. Mér finnst þessi sósa sem ég geri alveg rosa góð. Hér er ca uppskriftin:

500 gr nautahakk
150 gr sveppir, niðurskornir
1/2 stór rauðlaukur, eða 1 lítill, smátt skorinn
2 mini hvítlaukar, eða 3-4 hvítlauksrif, raspaðir
2 dósir tómatkraftur
100 gr kotasæla
vatn til að þynna, ca 3-5 dl
Ítölsk kryddblanda
smá olía til steikingar

Hakk steikt á pönnu og tekið til hliðar
Laukur, hvítlaukur og sveppir steiktir á pönnu og hakkið sett út í.
Tómatkrafti bætt við og síðan vatni. Set yfirleitt vatn í tómatkraftsdósirnar og hræri vel í til að ná restinni úr dósunum. Set  ca 3-4 slíkar dósir af vatni. Síðan er kotasælunni smellt út í og hrært vel í og látið malla. Kryddað eftir smekk, e.t.v. smá kjötkraftur settur út í líka.

Mér finnst þetta allavegana ein besta kjötsósa sem ég fæ ;)

En þetta dæmi á www.polarpersonaltrainer.com er snilld. Þar er hægt að færa inn æfingarnar sem maður gerir, plana æfingar, setja inn þyngd, meðalpúls, hvíldarpúls o.fl. og þannig fylgjast með hvernig maður bætir sig. Já, þetta er alveg rosalega sniðugt :D


Palladrottningin… NOT!

18 febrúar, 2008

Voða sniðug, dreif mig í pallatíma kl. 17:30 í Laugum. Langt síðan ég hef farið, en mér hefur alltaf fundist voða gaman í pallatímum. Eniveis, ekkert allt of flókin spor, en ansi hröð, svo ég var svona pínu út úr kú á köflum. Nema þegar tíminn er rúmlega hálfnaður þá tekst mér að stíga svona asnalega niður að ég misstíg mig svona skemmtilega og var bara draghölt á eftir. Kældi þetta strax og druslaðist svo bara heim. Og hér ligg ég í Lay-Z-Boy, með hátt undir fótum, búin að taka verkjatöflur og vil helst ekki þurfa að hreyfa mig. Snillingur, eða þannig. Jebb, drottning ræktarinnar í dag. Efast um að ég þjösnist mikið í ræktinni næstu daga… andskotinn!!!


Helgin

17 febrúar, 2008

Ekki var hún nú neitt glæsileg svona átakslega séð. Ég reyndar keypti mér Polar F11 púlsmæli á föstudaginn og fór svo auðvitað í ræktina að prófa hann. Ákvað að fara eftir þessum æfingapúlsi og mér fannst ég ekkert vera að taka á að ráði. En ég ætla samt að prófa að fara eftir þessu núna. Eins og vinkona mín, sem er einkaþjálfari, útskýrði svo vel, að til að brenna fitu þarf náttúrulega súrefni og ef maður er að púla svo mikið að maður sé mjög móður, þá er líkaminn ekki að fá nægilega mikið af súrefni. Svo reyndar sá ég að það munar ekki svo svakalega á kaloríumagninu sem maður er að brenna þegar maður tekur þetta svona á meðalpúlsi og þegar maður er að púla eins og vitleysingur. Það munaði um 100 hitaeiningum. En allavegana er ég mjög hrifin af þessum púlsmæli ;) Held að það sé mikið rétt að hann hvetji mann áfram.

En síðan matarlega séð… eh…

Fór í afmæli á föstudagsvköldið og datt hressilega í það, sem var svo sem ekkert alvarlegt. En hins vegar var ég í þynnkusukkinu í gær. Tókst að vísu að halda mér frá sælgætinu, en stóðst ekki mátið, eftir baráttu allan daginn, og keypti mér nachos og salsaídýfu um kvöldið. Finn líka vel hvað ég er þyngri og með sukkið utan á mér í dag. En þá er bara að byrja aftur og vera dugleg í dag og næstu daga… og vikur. Nú er reyndar ekkert djamm planað á næstunni og best að reyna að halda því bara þannig. Ef ég ætla að losna við einhver kíló fyrir páska þá veitir ekki af aðhaldinu. Sé ekki fram á að ná 80 kg fyrir þennan tíma, yrði eiginlega bara ánægð ef ég kemst aftur í 85.

Veit reyndar ekki hvort ég hef tíma til að fara í ræktina í dag, en ég ætla að reyna.

—————————————————————————————————

Jæja, smá öppdeit. Dreif mig í ræktina og tók smá brennslu/upphitun í 30 mín á CrossTrainernum, og tók síðan bak og biceps vöðva. Fyndið hvað það er skemmtilegra í ræktinni þegar maður er með svona græjur. Nú er maður sko með iPod OG púlsmæli, hehehe.

En svo bakaði yngri dóttir mín súkkulaðibitakökur áðan (með smá aðstoð móður sinnar) og það var nú ekki annað hægt en að smakka afraksturinn hjá meistarabakaranum :Þ


Púlsmælir

14 febrúar, 2008

Nú langar mig svo rosalega í svona púlsmæli. Líst mjög vel á þennan sem Rusla mælti með. Held að ég fjárfesti bara í einum slíkum. Er svoddan sökker fyrir svona gadgeti ;) Ætla að tékka hvort það sé komið nýtt kreditkortatímabil í Útilífi og kaupa mér þá svona græju ;)

Annars var ég mjög dugleg í dag; mataræðið gott og dreif mig líka í ræktina og púlaði vel ;)


Hmmmmmm!!!!

13 febrúar, 2008

Var búin að blogga, en færslan hvarf. Hef ekki lent í þessu áður hér á wordpress.

En allavegana þá hef ég ekki getað skráð kaloríurnar, þar sem hot.is liggur niðri og ég veit bara ekkert hvað hefur komið fyrir síðuna :( Eins og ég nota hana mikið. Vonandi kemst hún í lag aftur.

Annars held ég að mataræðið hafi verið fínt í dag. Fór að vísu ekki í ræktina, enda bara hundþreytt. Var á næturvakt s.l. nótt, vaknaði fljótlega eftir hádegið til að fara í foreldraviðtal, og svo fór ég að vinna aftur frá 16-20. Bara nennti ekki í ræktina þegar ég var búin. En ég stefni alldeilis á að fara á morgun.

Annars leist mér bara vel á World Class í Turninum, nema að aðstaðan er ekki alveg tilbúin. Það er ekki búið að tengja sjónvarp og útvarp í tækin og eins var enginn vaskur til að fylla á brúsana sína. Svo fann ég heldur engin lítil handklæði. En mér skilst að það eigi nú að bæta úr þessu fljótlega. En tækin eru fín, útsýnið geggjað og allt mjög snyrtilegt og fínt. Líst rosa vel á að geta skroppið í Turninn frekar en að þurfa alltaf að keyra niður í Laugar.

En já, so far so good. Drekk mitt Oolong te og finnst það bara fínt, hvað sem það svo gerir fyrir mig. Drekk kannski aðeins minna Pepsi max fyrir vikið ;) Svo hugsa ég bara stíft um brúðarkjólinn sem mig langar að vera í ;)