Góðan dag og gleðilegt ár :D

7 janúar, 2008

Jæja, þá er ég mætt aftur. Ég hef eiginlega ekkert verið að passa mataræðið í jólafríinu og ekki hef ég mætt í ræktina. En ég labbaði upp á Keili á jóladag eins og ég ætlaði, og síðan varð ég reyndar lasin með þvagfærasýkingu og fleira þarna á milli hátíðanna.

Ég er örugglega búin að vera eins og alkóhólisti á leið í afvötnun núna s.l. daga. Ákvað að átakið skyldi hefjast að nýju í dag og um helgina var ég bara óð í sælgæti og óhollustu, og át eins og mér væri borgað fyrir það. Á morgun verður opinber vigtunardagur og það er alveg bókað að það verða einhver kíló búin að bætast á.

Svo þarf ég að fara að koma mér í ræktina aftur. Unnustinn gaf mér þennan flotta iPOD Nano í jólagjöf og ég þarf eiginlega að læra á hann svo ég geti nú notað hann í ræktinni ;)

En allavegana er rútinan komin af stað aftur og jólin búin. Svo verður maður bara að tækla páskana næst ;)