Prjónaklúbbur

30 janúar, 2008

Í kvöld var prjónaklúbbur hjá mér og þar sem ég er svo holl þá verða allir að vera það með mér. Ég bauð upp á heimalagaða grænmetissúpu og nýbakað brauð úr spelti og ABmjólk með sólþurrkuðum tómötum… engin olía í uppskriftinni nema það sem slæddist með tómötunum. Svo var ég reyndar með blandaðar hnetur á borðinu og líka súkkulaðihúðaðar döðlur. Skrifaði reyndar ekki niður hitaeiningarnar í dag, en ég hef samt örugglega verið bara nokkuð góð. Allt voða hollt og var ekki að borða yfir mig af neinu. Mataræðið í gær var líka alveg í lagi.

Ég fór í ræktina í gær, reyndar bara í 40 mín á Cross-Trainerinn, þar sem ég var frekar seint á ferðinni, og svo fór ég smá í heita pottinn á eftir. Hafði ekki tíma fyrir ræktina í dag, en ég ætla bara á morgun.

En allavegana er ég ánægð með mig í gær og í dag ;)